Ef menn vilja einangrun Helgi Magnússon og framkvæmdastjóri skrifa 8. mars 2013 06:00 „Ef menn vilja einangrun, þá verða þeir að taka afleiðingum hennar og reyna þá hvorki gagnvart sjálfum sér né öðrum að hræsna með því að þeir séu hinir mestu framfaramenn. Þeir eru þvert á móti menn afturhalds og úrtölu. Einangrunin, sem nærri hafði drepið þjóðina á löngum, þungbærum öldum, er þeim runnin svo í merg og bein, að þeir standa uppi sem nátttröll á tímum hinna mestu framfara. Vísindi og tækni nútímans og hagnýting þeirra er bundin þeirri forsendu, að víðtækt samstarf eigi sér stað. Þess vegna leita jafnvel stórþjóðirnar samstarfs hver við aðra, jafnt stórar þjóðir sem smáar. Ef stórþjóðunum er slíkt þörf, þá er smáþjóðunum það nauðsyn. Auðvitað verður að hafa gát á ........ En eðlilegt er, að almenningur spyrji: Ef aðrir, þeir sem okkur eru líkastir að menningu og efnahag, hafa svo góða reynslu, hví skyldum við þá óttast, að reynsla okkar yrði önnur og lakari?“ Þetta sagði Bjarni heitinn Benediktsson forsætisráðherra á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 1969 þegar deilt var um aðild Íslands að EFTA. Um það voru skiptar skoðanir og víða tekist á um málið í stjórnmálaflokkum og úti í þjóðfélaginu. Íslendingar ákváðu að gerast aðilar að EFTA, þjóðinni til farsældar, ekki síst vegna þess að þá áttu Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur öfluga leiðtoga sem þorðu að taka ákvarðanir og vinna þeim brautargengi innan flokka sinna og meðal þjóðarinnar. Þar fóru fremstir þeir Bjarni Benediktsson og Gylfi Þ. Gíslason, formaður Alþýðuflokksins. Rökin sem þarna voru færð fram árið 1969 vegna EFTA-aðildar eru enn í fullu gildi vegna afstöðu til ESB. Framangreinda tilvitnun er að finna í riti sem Sjálfstæðir Evrópumenn hafa gefið út. Ritinu var m.a. dreift á nýafstöðnum landsfundi sjálfstæðismanna þar sem einangrunarsinnar réðu því miður allt of miklu varðandi ályktanir fundarins í mikilvægum málum. Þannig var ályktað að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði hætt án þess að fengin verði niðurstaða. Það ber ekki vott um víðsýni að vilja nú freista þess að stöðva ferlið í staðinn fyrir að fá það á hreint hvernig unnt er að vinna að framgangi hagsmuna Íslands í Evrópusamstarfi. Alltaf hefur legið fyrir að þjóðin muni eiga síðasta orðið með þjóðaratkvæðagreiðslu.Grímulaus forsjárhyggja Ekki er unnt að draga aðra ályktun af þessu en þá að flokkurinn treysti þjóðinni ekki til að taka þessa mikilvægu ákvörðun. Ef menn trúa því að kjósendur fari sér að voða í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB þá er það ekkert annað en grímulaus forsjárhyggja og hún er Sjálfstæðisflokknum ekki samboðin og fellur ekki að grunnstefnu hans. En hvers vegna verður þá einangrunarstefna ofan á þegar landsfundur ályktar? Á því kunna að vera ýmsar skýringar. Ein er sú að nokkrir fyrrum ráðamenn í flokknum hafa lengi farið mikinn í öfgakenndri andstöðu sinni við Evrópusambandið og mælt eindregið gegn samningaviðræðum, hvað þá samningum, og einskis svifist í málflutningi sínum. Þeir voru fyrirferðarmiklir á fundinum og höfðu sitt fram ekki síst vegna þess að núverandi forysta flokksins er veik og ráðvillt og hefur ekki burði til að leiða stefnumótun flokksins inn á farsælar brautir. Fyrir það mun flokkurinn gjalda í komandi kosningum. Ég hef þá trú á sjálfstæðisfólki almennt að því líki ekki við eingangrunartilburði og gamladags hræðsluáróður. Réttkjörnir forystumenn flokksins hljóta að sjá þetta en þá virðist skorta kjark og þor til að standa gegn háværum öfgaöflum.Veröld sem var Mikið hefur verið rætt að undanförnu um formannsskipti í ríkisstjórnarflokkunum og að með þeim megi vænta uppbyggilegri vinnubragða í kjölfar kynslóðaskipta. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn að njóta góðs af því að kjósendur kalli eftir nýjum forystumönnum af kynslóð þeirra sem eru kringum fertugt verður forystan að taka til sín þau völd sem henni hafa verið fengin með lögmætum hætti. Þá getur hún ekki lengur unað við það að standa í skugga þeirra sem tilheyra veröld sem var og seilast enn eftir völdum og áhrifum sem þeir höfðu í ríkum mæli á árum áður. Sjálfstæðisflokkinn virðist vanta dug til að taka djarfar og farsælar ákvarðanir eins og voru einkennandi fyrir stjórnmálamenn sem þorðu að leiða þjóðina inn í Sameinuðu þjóðirnar, NATO, EFTA og EES. Þau skref hafa reynst gæfuspor fyrir landsmenn. Til þess að vel takist til í hópum og flokkum þarf forystumenn með kjark, góða dómgreind og víðsýni á við Bjarna heitinn Benediktsson forsætisráðherra sem vitnað var til hér í upphafi. Það heyrðust úrtöluraddir á landsfundinum árið 1969 og einangrunarsinnar vildu forðast samstarf við útlendinga – alveg eins og nú er. En þá leiddi forystan flokkinn til réttra ákvarðana og kvað niður útlendingahræðslu og minnimáttarkennd. Sjálfstæðisflokkurinn á því miður ekki slíkum leiðtogum á að skipa nú um stundir. Gildir þá einu hvort átt er við réttkjörna forystumenn eða hina sem ráða flokknum að tjaldabaki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar