Blákaldir hagsmunir Íslands Teitur Björn Einarsson og lögmaður skrifa 7. mars 2013 06:00 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skrifar í Fréttablaðið þann 22. febrúar sl. og svarar gagnrýni minni á þversagnakenndar árásir hans á utanríkismálastefnu Sjálfstæðisflokksins. Í greinarbút hans má þó trauðla finna mótrök við gagnrýni minni og má helst lesa á milli lína að þar sé ráðherrann að koma á framfæri ákalli til Sjálfstæðisflokksins um að hjálpa sér við að koma Íslandi í ESB. Áréttað var á nýafstöðnum landsfundi að Sjálfstæðisflokkurinn telur hagsmunum Íslands betur borgið fyrir utan ESB. Aðildarviðræður ríkisstjórnarinnar við ESB eru í ógöngum og því er beiðni Össurar um aðstoð í því máli skiljanleg. Sáttaboð Sjálfstæðisflokksins um þjóðaratkvæðagreiðslu til að skera úr um framhald viðræðnanna stendur enn og var ítrekað í ályktun landsfundar um utanríkismál þó með breyttu orðalagi um að hætta viðræðum í stað þess að gera hlé. Vilji Össur ekki einangra sinn flokk enn frekar er rétta leiðin að slást í lið með Sjálfstæðisflokknum og leggja málið fyrir þjóðina. Það er lýðræðisleg leið sem best er til þess fallin að skapa sátt um þetta mikla ágreiningsmál. Utanríkisstefna Íslands á að felast í því að treysta stöðu þjóðarinnar með því að efla frjálsræði í viðskiptum og nýta þau margvíslegu tækifæri sem felast í vaxandi alþjóðastarfi og samvinnu við aðrar lýðræðisþjóðir sem hafa frið, frelsi og mannréttindi að leiðarljósi. Þetta er kjarninn í utanríkisstefnu Sjálfstæðisflokksins og um þetta markmið hafa sjálfstæðismenn og kratar haft ágætt samstarf gegnum tíðina. Þannig sér Össur, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn, að fyrirhugaður fríverslunarsamningur milli ESB og Bandaríkjanna getur skapað grunn að miklum tækifærum í alþjóðaviðskiptum. Það eru því talsverðir hagsmunir í húfi fyrir Ísland að leita leiða til að koma að því borði og gerast aðili að slíkum samningi. Sjálfstæðismenn munu aldrei sætta sig við gjaldeyrishöft og þeim er full ljóst að við núverandi ástand efnahagsmála, eins og ríkisstjórnin kýs að skilja frá borði, verður ekki unað. Var ályktað á landsfundi að íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef taka á þátt í alþjóðlegri samkeppni og afla þjóðinni tekna á heimsmarkaði. Aðalatriði er að innganga í ESB felur ekki í sér neinar efnahagslegar lausnir sem við Íslendingar getum ekki sjálfir ráðist í að framkvæma. Það eru því blákaldir hagsmunir Íslands sem eiga að ráða för en ekki tálsýnin um töfralausn ESB-aðildar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, skrifar í Fréttablaðið þann 22. febrúar sl. og svarar gagnrýni minni á þversagnakenndar árásir hans á utanríkismálastefnu Sjálfstæðisflokksins. Í greinarbút hans má þó trauðla finna mótrök við gagnrýni minni og má helst lesa á milli lína að þar sé ráðherrann að koma á framfæri ákalli til Sjálfstæðisflokksins um að hjálpa sér við að koma Íslandi í ESB. Áréttað var á nýafstöðnum landsfundi að Sjálfstæðisflokkurinn telur hagsmunum Íslands betur borgið fyrir utan ESB. Aðildarviðræður ríkisstjórnarinnar við ESB eru í ógöngum og því er beiðni Össurar um aðstoð í því máli skiljanleg. Sáttaboð Sjálfstæðisflokksins um þjóðaratkvæðagreiðslu til að skera úr um framhald viðræðnanna stendur enn og var ítrekað í ályktun landsfundar um utanríkismál þó með breyttu orðalagi um að hætta viðræðum í stað þess að gera hlé. Vilji Össur ekki einangra sinn flokk enn frekar er rétta leiðin að slást í lið með Sjálfstæðisflokknum og leggja málið fyrir þjóðina. Það er lýðræðisleg leið sem best er til þess fallin að skapa sátt um þetta mikla ágreiningsmál. Utanríkisstefna Íslands á að felast í því að treysta stöðu þjóðarinnar með því að efla frjálsræði í viðskiptum og nýta þau margvíslegu tækifæri sem felast í vaxandi alþjóðastarfi og samvinnu við aðrar lýðræðisþjóðir sem hafa frið, frelsi og mannréttindi að leiðarljósi. Þetta er kjarninn í utanríkisstefnu Sjálfstæðisflokksins og um þetta markmið hafa sjálfstæðismenn og kratar haft ágætt samstarf gegnum tíðina. Þannig sér Össur, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn, að fyrirhugaður fríverslunarsamningur milli ESB og Bandaríkjanna getur skapað grunn að miklum tækifærum í alþjóðaviðskiptum. Það eru því talsverðir hagsmunir í húfi fyrir Ísland að leita leiða til að koma að því borði og gerast aðili að slíkum samningi. Sjálfstæðismenn munu aldrei sætta sig við gjaldeyrishöft og þeim er full ljóst að við núverandi ástand efnahagsmála, eins og ríkisstjórnin kýs að skilja frá borði, verður ekki unað. Var ályktað á landsfundi að íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar ef taka á þátt í alþjóðlegri samkeppni og afla þjóðinni tekna á heimsmarkaði. Aðalatriði er að innganga í ESB felur ekki í sér neinar efnahagslegar lausnir sem við Íslendingar getum ekki sjálfir ráðist í að framkvæma. Það eru því blákaldir hagsmunir Íslands sem eiga að ráða för en ekki tálsýnin um töfralausn ESB-aðildar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar