"Ég veit ég gerði þetta ekki“ Boði Logason í Héraðsdómi Austurlands skrifar 29. ágúst 2013 10:13
Friðrik Brynjar Friðriksson virtist rólegur þegar hann gekk inn í dómsalinn í Héraðsdómi Austurlands í morgun í fylgd tveggja fangavarða. Hann hefur dvalið á Litla-Hrauni síðustu mánuði en hann er ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana á Egilsstöðum þann 7.maí síðastliðinn. Aðalmeðferðin stendur nú yfir en Friðrik er talinn hafa banað Karli með því að leggja til hans með hnífi. Friðrik hefur borði við minnisleysi við yfirheyrslur. Skýrsla var tekin af honum fyrir dómi í morgun. „Ég var búinn að búa þarna í mánuð og þekkti Karl ekki neitt. Viku fyrir þetta hitti ég hann í nokkrar mínútur, þegar ég var að merkja póstkassann," sagði Friðrik sem var að smiða grind undir rúmið daginn sem atburðurinn átti sér stað. Hann segist hafa farið í Ríkið um klukkan fimm, hann hafi drukkið nokkra bjóra heima hjá sér svo farið út að drekka bjór með vinum sínum og endað upp á slysadeild eftir að hundur vinarins beit hann. Það hafi þó ekki verið neitt alvarlegt. Hann hafi komið heim til sín um klukkan ellefu og gengið svo á íbúðir í blokkinni til að freista þess að einhver í blokkinni gæti lánað sér bjór. Hann segir að Karl hafi boðið honum inn til sín, og þeir farið að spjalla um daginn og veginn. Friðrik segist hafa sagt honum að hann væri mikill barnakarl. „Hann sagði við mig að maður þyrfti að passa sig á því í litlu samfélagi. Ég spyr hvað hann meinar með því og þá fer hann að tala um sakleysi barna og unglinga, og segir þetta frekar ógeðfeldlega. Ég segi að ég vilji ekkert svona tal og fer inn á klósett að pissa,“ sagði Friðrik. „Þegar ég kom út þá stendur hann yfir mér og spyr hvort að ég eigi ekki börn. Ég segi jú, segist eiga eins árs stelpu. Hann „actaði“ allt öðruvísi en hann hafði gert áður.“ „Svo segir hann við mig að hann hlakki til að taka bleyjuna af barninu mínu og leika við hana. Þá slæ ég hann og hann dettur ofan í svona lazy-boy stól við hliðina á sófanum“ segir Friðrik og hikar í frásögn sinni. „Ég rýk út eftir þetta, skelli á eftir mér og kallaði á hundinn.“ Friðrik segist hafa viðrað hundinn í smá stund en þegar hann hafi komið aftur hafi hurðin inn til Karls verið opin. Hann hafi farið inn og þá hafi aðkoman verið allt öðruvísi en þegar hann hafi skilið við hann. „Ég man eftir því að hafa komið inn og reynt að ná sambandi við manninn. Hann lá þá og var með blóð framan í sér. Ég var ölvaður. Ég man að ég hélt undir hendurnar á honum og var að reyna að ná sambandi við hann. Ég er ekki viss hvort ég hafi dregið hann í sófann.“ Friðrik segist hafa hringt á lögregluna, og í máli verjanda hans kom fram að hann hafi tilkynnt lögreglu að hann héldi að hann hafi orðið manni að bana. „Ég man bara eftir blóði. Ég var mjög hræddur þegar ég sá blóð. Ég var að reyna að ná sambandi við hann í nokkrar mínútur því ég hélt hann hefði nefbrotnað eða eitthvað þegar ég sló hann.“ Friðrik kannaðist hinsvegar ekkert við að hafa hringt þegar lögreglan kom á staðinn. „Ég var bara skíthræddur, þetta voru aðstæður sem er ekki hægt að lýsa. Maður hugsar kannski alveg skýrt. Ég var handviss um að hann væri látinn." Ætlaðirðu ekkert að láta lögguna vita? „Jú,jú. Ég var bara drukkinn og í sjokki. Ég var skíthræddur...ég í rauninni get ekki svarað þessu" Um morguninn var Friðrik handtekinn, eftir að nágranni tilkynnti um að líklega væri látinn maður á svölunum í blokkinni. Friðrik segir að lögreglan á Egilsstöðum hafi sagt við sig í fangaklefanum eftir að hann var handtekinn að hann hafi drepið manninn í stólnum og dregið hann út á svalir. „Hann sagði við mig að öll gögn bendi til þess að ég hafi drepið hann." Friðrik segist hafa farið með þessar upplýsingar í veganesti á Litla-Hraun og sé búinn að hugsa mikið um þetta. „Ég er búinn að vera andvaka yfir þessu máli núna í fjóra mánuði. Búinn að hugsa þetta frá A til Ö á hverjum degi. Hnífur er ekki inni í myndinni. Allir sem þekkja mig eitthvað, eða standa nærri mér, vita að ég gæti ekki gert svona. Ég hefði ekki getað gert manninum þetta" Friðrik er loks spurður að því hvort hann hafi skilið Karl þannig að hann hefði kynferðislegan áhuga á börnum. „Já. Hann var þannig í fasi. Ég var búinn að vera hjá honum í þrjátíu til fjörutíu mínútur. Ég sló hann með flötum lófa og hrinti honum svo í stólinn." „Hann fannst í Nike íþróttabuxum en ég man greinilega eftir honum í gallabuxum, því hann var alltaf með hendurnar í rassvasanum." Saksóknari spurði Friðrik afhverju hann hafi farið til baka eftir að hafa verið að leika við hundinn? „Ég veit það ekki. Ætlaði að ná mér í bjór. Ef ég hefði ráðist svona að manninum, eins og var gert, hefði ég aldrei farið til baka." „Ég fer inn til hans og reyni að ýta við honum. Mér hefur alltaf fundist eins og hann hafi verið liggjandi þegar ég kom. Mér var sagt að ég hafi dregið hann úr sófanum. Ég man að ég tók í höndina á honum og togaði í hann. Ég lyfti honum aðeins upp og ýtti eitthvað við honum. Sá blóðið og varð bara skíthræddur, hljóp niður í kjallara og hringdi á lögregluna." Áttu það til að drekka of mikið? „Já. Þetta er búið að vera vesen síðan ég byrjaði að drekka. Stundum drekk ég nokkra daga í röð. Það hefur alveg komið fyrir að ég sé heima að drekka þangað til ég fer að sofa." Áttu sögu um að muna ekki allt þegar þú ert undir áhrifum? „Já það hafa alveg komið fyrir punktar. Ég er búinn að hugsa þetta líka. Hef alveg hugsað um það hvort ég hafi dottið út akkúrat þarna en muni fyrir og eftir. En það er bara ekki sjéns. Það er ekki sjéns að ég muni ekki neitt eftir því." Hefurðu fengið ofsareiði? „Kannski ekki ofsareiði en ég hef alveg reiðst oft en ekkert svona eins og er lýst." Er það rétt að þú hafir misst stjórn á þér, eftir þennan misskilning? „Ég bara sló manninn. Ég hef alveg reiðst oft en ég er ekki ofbeldishneigður þannig. Þegar ég var fimmtán til sextán ára á sveitaballi að töffarast. Og að ráðast á einhvern með vopni. Það er ekki ég."Frekari fréttir af vitnisburði Friðriks og annarra mun birtast hér á Vísi í dag, í útvarpsfréttum Bylgjunnar og í Kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent