Áttu þér draum? Bjarni Gíslason skrifar 23. ágúst 2013 12:00 „Ég á mér engan draum“ var svar 17 ára Indverja sem hafði verið bundinn í þrælavinnu síðan hann var tíu ára. Þrælavinnan hafði algjörlega rænt hann voninni og neistanum. Viðtal við þennan dreng og fleiri börn má sjá í myndinni Upp úr öskustónni á Youtube. Hjálparstarf kirkjunnar vinnur í samstarfi við mannréttindasamtökin Social Action Movement (SAM) að því að leysa börn úr skuldaánauð. Sakir fátæktar og kúgunar setja foreldrar börn sín í vinnu gegn láni fyrir óvæntum útgjöldum og nauðþurftum. Að leysa barn úr skuldaánauð felur ekki bara í sér að greiða skuldina heldur veita foreldrum og börnum fræðslu um réttindi sín og langtíma stuðning. Foreldrar fá hjálp við að auka tekjur sínar svo þeir þurfi síður að taka lán. Hvert þrælabarn er búið undir almenna skólagöngu í sérstökum kvöldskólum. Þeim er svo komið í opinbera skóla og fylgt eftir þar svo þau heltist ekki úr námi. Allt verður þetta grundvöllur fyrir því að vonin og lífsneistinn kvikni aftur, já og bjartir draumar um framtíðina. „Ég ætla að verða læknir,“ sagði ein stúlkan sem hafði verið leyst úr ánauð og byrjuð í skóla. Í borginni Kanchipuram á Indlandi voru fyrir nokkrum árum 30.000 þrælabörn en nú hefur þeim samkvæmt upplýsingum frá SAM fækkað niður fyrir 10.000. Mörg samtök og einnig yfirvöld hafa lagt sitt af mörkum til að ná þessum árangri. En betur má ef duga skal. „Hvað langar þig til að verða?“ spyrjum við oft börnin okkar og fáum fjölbreytt og skemmtileg svör. Við myndum hrökkva við ef við fengjum svarið „ég ætla ekki að verða neitt, ég á mér engan draum“. En þannig er staðan hjá allt of mörgum börnum. Góð leið til að bæta ástandið er að gefa vinum og ættingjum gjafabréfið „Frelsa barn úr skuldaánauð“ á www.gjofsemgefur.is. Með því eru slegnar tvær flugur í einu höggi, vinurinn eða ættinginn fær persónulega kveðju með hamingjuóskum og SAM-samtökin fá fjármagn til að leysa fleiri börn úr ánauð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun „Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er það glæpur að vilja stunda ábyrgar fiskveiðar? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Hafró ver hvalinn en gleymir fiskinum Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Erfitt að veiða ufsa án kvóta í þorski Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Jæja kosningunum lokið Elías B. Elíasson skrifar Sjá meira
„Ég á mér engan draum“ var svar 17 ára Indverja sem hafði verið bundinn í þrælavinnu síðan hann var tíu ára. Þrælavinnan hafði algjörlega rænt hann voninni og neistanum. Viðtal við þennan dreng og fleiri börn má sjá í myndinni Upp úr öskustónni á Youtube. Hjálparstarf kirkjunnar vinnur í samstarfi við mannréttindasamtökin Social Action Movement (SAM) að því að leysa börn úr skuldaánauð. Sakir fátæktar og kúgunar setja foreldrar börn sín í vinnu gegn láni fyrir óvæntum útgjöldum og nauðþurftum. Að leysa barn úr skuldaánauð felur ekki bara í sér að greiða skuldina heldur veita foreldrum og börnum fræðslu um réttindi sín og langtíma stuðning. Foreldrar fá hjálp við að auka tekjur sínar svo þeir þurfi síður að taka lán. Hvert þrælabarn er búið undir almenna skólagöngu í sérstökum kvöldskólum. Þeim er svo komið í opinbera skóla og fylgt eftir þar svo þau heltist ekki úr námi. Allt verður þetta grundvöllur fyrir því að vonin og lífsneistinn kvikni aftur, já og bjartir draumar um framtíðina. „Ég ætla að verða læknir,“ sagði ein stúlkan sem hafði verið leyst úr ánauð og byrjuð í skóla. Í borginni Kanchipuram á Indlandi voru fyrir nokkrum árum 30.000 þrælabörn en nú hefur þeim samkvæmt upplýsingum frá SAM fækkað niður fyrir 10.000. Mörg samtök og einnig yfirvöld hafa lagt sitt af mörkum til að ná þessum árangri. En betur má ef duga skal. „Hvað langar þig til að verða?“ spyrjum við oft börnin okkar og fáum fjölbreytt og skemmtileg svör. Við myndum hrökkva við ef við fengjum svarið „ég ætla ekki að verða neitt, ég á mér engan draum“. En þannig er staðan hjá allt of mörgum börnum. Góð leið til að bæta ástandið er að gefa vinum og ættingjum gjafabréfið „Frelsa barn úr skuldaánauð“ á www.gjofsemgefur.is. Með því eru slegnar tvær flugur í einu höggi, vinurinn eða ættinginn fær persónulega kveðju með hamingjuóskum og SAM-samtökin fá fjármagn til að leysa fleiri börn úr ánauð.
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar
Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar
Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun