Handbolti

Rúnar sló í gegn í fyrsta leik

Rúnar á æfingu með Hannover.
Rúnar á æfingu með Hannover.
Rúnar Kárason byrjaði feril sinn hjá Hannover-Burgdorf með látum í kvöld. Hann var þá valinn maður leiksins er liðið gerði 28-28 jafntefli við Kadetten Schaffhausen í EHF-bikarnum.

Rúnar spilaði virkilega vel í kvöld og skoraði fjögur mörk. Hann var næstmarkahæstur í liðinu en þrír aðrir leikmenn skoruðu fjögur mörk.

Þetta var fyrri leikur liðanna en Hannover á seinni leikinn á heimavelli og er því í fínni stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×