Handbolti

Dagur á toppinn í Þýskalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Füchse Berlin skellti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með öruggum sigri á Bergischer, 36-25.

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður, leikur með Bergischer sem hefur komið á óvart í vetur og situr í níunda sæti deildarinnar með fimmtán stig.

Berlínarrefirnir eru hins vegar með 26 stig að loknum sextán leikjum og verða á toppnum að minnsta kosti í sólarhring.

Flensburg er einu stigi á eftir og á leik til góða gegn Balingen á morgun. Kiel er svo í þriðja sætinu með 24 stig en á tvo leiki til góða Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar eiga leik gegn Lübbecke annað kvöld.

Sigur Füchse Berlin var öruggur í kvöld en Fredrik Petersen skoraði sex mörk fyrir liðið. Björgvin Páll átti góðan leik í kvöld og kom í veg fyrir enn stærra tap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×