Danir og Þjóðverjar vilja halda saman HM í handbolta 2019 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2013 18:00 Danir vilja fá að halda HM. Mynd/AFP
Ulrik Wilbek, þjálfari danska landsliðsins í handbolta og verðandi íþróttastjóri danska handboltasambandsins, hefur mikla trú á því að HM í handbolta eftir rúm fimm ár geti orðið flottasta keppni sögunnar fari svo að Danir og Þjóðverjar fái að halda keppnina saman. Á mánudaginn kemur í ljós á fundu Alþjóðahandboltasambandsins í Katar hvort að Danmörk og Þýskaland fái að halda 26. Heimsmeistarakeppni karla í handbolta saman árið 2019 og Ulrik Wilbek er vongóður. „Heimsmeistarakeppnin myndi fara fram í München, Berlin, Hamburg og Köln í Þýskalandi og svo í Kaupmannahöfn og Herning í Danmörku. Þetta eru allt stórar hallir í stórum borgum og þetta myndi verða stærsta og flottasta heimsmeistarakeppni sögunnar. Áhorfendametið yrði slegið og þetta yrði einstakt mót," segir Ulrik Wilbek við Politiken. Danir halda næsta Evrópumót í handbolta sem fer fram í upphafi næsta árs. Þeir héldu síðast HM árið 1978 en HM í handbolta fór síðast fram í Þýskalandi árið 2007. Pólland, Noregur og sameiginlegt framboð Ungverjalands og Slóvakíu vilja einnig fá að halda HM árið 2019. Næsta heimsmeistarakeppni fer fram í Katar árið 2015 og árið 2017 verður HM í handbolta haldið í Frakklandi. Danir reyndu að fá HM 2017 en þá voru þeir ekki með Þjóðverja með sér í liði.
Handbolti Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira