Fjölga þarf kúm í fjósum landsins Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 12. október 2013 13:43
Fjölga þarf íslenskum mjólkurkúm í landinu til að anna mikilli eftirspurn eftir mjólkurvörum en sala á skyri, smjöri, rjóma og fleiri afurðum hefur verið ævintýraleg. Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherra íhugar alvarlega að fara í lágkolvetnismegrunarkúrinn en þar er mælt með miklu áti á feitu smjöri og rjóma. Síðdegis í gær var stór dagur hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi, eða MS Selfossi því þangað kom Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherra til að ýta á tvo takka um leið og hann gangsetti nýjar pökkunarvélar búsins en öll mjólkurpökkun hefur verið flutt úr Reykjavík á Selfoss.Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherraSala á mjólkurvörum hefur sjaldan eða aldrei gengið eins vel, ekki síst salan á skyri en búið að Selfossi framleiðir um 100 tonn fyrir Bandaríkjamarkað á ári og Finnar fá 400 tonn, þá hefur orðið mikill söluaukning á smjöri hér heima. Sigurður Ingi segir að nú þurfi að auka við mjólkurframleiðsluna og fjölga kúm í fjósum landsins. Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri á Selfossi sagði í Bylgjufréttum í gær að hann þakkaði m.a. lágkolvetnisæði landsmanna fyrir mikilli söluaukningu á íslensku smjöri en þar er mælt með því að fólk borði mikla fitu eins og smjör og rjóma. Sigurður Ingi er að spá í að skella sér á þennan vinsæla megrunarkúr.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira