Ekki talinn hafa vitað aldur stúlkunnar Jakob Bjarnar skrifar 14. október 2013 12:56 Maðurinn afhenti stúlkunni fyrirframgreiðslu sem nam 20 þúsund krónum. Stúlkan tók við fénu en hljóp á brott. (Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti.) AFP
Maðurinn sem vildi kaupa vændi af sextán ára stúlku og kærði hana fyrir fjársvik eftir að hafa greitt fyrir það en ekki stúlkan ekki efnt kynlífsviðskiptin, hefur nú verið ákærður fyrir vændiskaup. Stöð 2 greindi ítarlega frá málinu í kvöldfréttum sínum í gær. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir þetta í skeyti til fréttastofunnar. Sigríður er upptekin við fundasetur á Egilsstöðum en segist auk þess ekki hafa miklu við málið að bæta en þetta að maðurinn hafi verið ákærður fyrir vændiskaup. Það var saksóknari sem ákvað að ákæra manninn án þess að fyrir lægju kærur. Þetta má heita vending en mál mannsins hefur verið til umfjöllunar undanfarna daga. Maðurinn hugðist kaupa vændi af 16 ára stúlku, en í fyrra, í október nánar tiltekið, hafði hann verið í samskiptum við hana á vefsíðunni einkamál. Þau mæltu sér mót og maðurinn afhenti stúlkunni fyrirframgreiðslu sem nam 20 þúsund krónum. Stúlkan tók við fénu en hljóp á brott. Í kjölfarið kærði maðurinn stúlkuna fyrir fjársvik og ákærði lögreglustjóri stúlkuna. Hæstiréttur vísaði málinu frá. Einkennilegt má heita að kæra hafi verið lögð fram í ljósi þess að kæranda ætti að vera ljóst að hann er þar með að játa á sig glæp. Eftir því sem Vísir kemst næst er ekkert í gögnum málsins bendir til þess að maðurinn eigi við andlega vanheilsu að stríða en það kann að hafa áhrif að lögreglu bar að þegar hin umdeildu og glæpsamlegu viðskipti áttu sér stað. Ákært er fyrir brot á 1. málsgrein. 206. greinar almennra hegningarlaga. En samkvæmt greininni er það ólöglegt að lofa því að greiða eða greiða fyrir vændi. Sé brotið gegn ákvæðinu hljóðar refsing upp á eins árs fangelsi hið mesta eða greiðslu fésekta. Saksóknari telur sig ekki geta fært sönnur á að maðurinn hafi vitað til þess að stúlkan væri aðeins 16 ára gömul og því er maðurinn ekki ákærður fyrir brot á 2. málsgrein ákvæðisins. Í því ákvæði varðar það tveggja ára fangelsi að greiða barni yngra en 18 ára fyrir vændi eða lofa því greiðslu. Það að kaup á vændi sé refsivert athæfi var samþykkt með breytingum á almennum hegningarlögum á Alþingi árið 2009. Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, sagði við það tækifæri lagabreytinguna mikilvægan áfanga í baráttunni gegn mansali og kynferðislegu ofbeldi. Hún sé liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali sem ríkisstjórnin samþykkti í mars 2009. Eins og fyrr segir skal samkvæmt lögunum skal hver sá sem greiðir eða heitir greiðslu eða öðrum ávinningi fyrir vændi sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Ef greitt er fyrir vændi barns yngra en 18 ára varðar það þyngri refsingu, allt að tveggja ára fangelsi. Ekki skiptir máli í hvaða formi greiðslan er en hún getur verið peningar, áfengi eða fíkniefni, hlutir, greiði eða þjónusta. Það að lofa greiðslu varðar sömu refsingu. Lögin eru að sænskri fyrirmynd en árið 1999 settu Svíar fyrstir þjóða löggjöf sem gerði kaup á vændi refsiverð.Athugasemd: Í fyrri útgáfu fréttarinnar var ranglega vísað í eldri útgáfu almennra hegningarlaga. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Sjá meira