Kastaði sér fyrir bíl og vildi bætur Boði Logason skrifar 15. október 2013 16:09 Ökumaðurinn og tryggingarfélagið var sýknað af kröfum mannsins. mynd/hari
Karlmaður sem sagðist ætla að binda endi á eigið líf með því að kasta sér fyrir bíl við Höfðabakka í desember árið 2010 fór í mál við ökumanninn sem keyrði á hann og tryggingarfélagið sitt. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir skömmu. Maðurinn, sem var mjög ölvaður þegar slysið varð, með 2,68 prómill í blóðinu, sagði fyrir dómi að hann hafi verið mjög drukkinn og verið drukkinn í 3 til 4 daga þegar hann gekk út á götuna. Það hafi verið komið að lokatúrnum og ætlaði hann í áfengismeðferð daginn eftir. Hann hafi verið á leið til vinar síns vestur í bæ, og þeir ætlað að borða saman. Töluverð umferð hafi verið og hann ekki í ástandi til að meta getu sína og fjarlægðir. Hann hafi talið sig sjá glufu til að sleppa yfir hægri akrenina og ná yfir á hina akreinina. Það hafi alls ekki verið ætlun hans að svipta sig lífi.Leit ekki í kringum sig Vitni að slysinu sagði hjá lögreglu að það hafi séð manninn ganga út á götuna og hann hefði ekki horft í kringum sig. „Engu líkara en að hann hefði ætlað sér að verða fyrir bíl.“ Annað vitni að slysinu sagði að það hafi „hugsað að maðurinn væri greinilega í sjálfsmorðshugleiðingum þegar þegar hún sá hann æða út á akbrautina án þess að líta í kringum sig." Sömu sögu sagði lögreglumaður sem tók skýrslu af manninum stuttu eftir slysið. „Aðspurður um aðdraganda slyssins hafi stefnandi sagt að ætlun hans hafi verið að binda enda á þetta. Aðspurður hvort ætlunin hafi verið að binda enda á líf sitt hafi stefnandi jánkað því.“Ökumaðurinn sem keyrði bílinn sagði hjá lögreglu að hann hafi ætlað að sveigja frá manninum en ekki náð því og maðurinn lent á hægra framhorni bifreiðarinnar. Hann hafi kastast upp á framrúðuna og dottið niður við hlið hennar. Hann hafi ekki haft tök á að snarstöðva bifreiðina.Ekki hægt að taka mark á yfirheyrslum eftir slysið Fyrir dómi kvað maðurinn sig eiga rétt á bótum. Taldi hann meðal annars að ökumaður bifreiðarinnar sem ók á hann hafi sýnt af sér ógætni með því að aka of hratt. Sagði hann að ekkert mark sé takandi á yfirheyrslum yfir honum á slysadeild, og það sé fráleitt að hann hafi kastað sér fyrir bifreiðina. Ökumaður bifreiðarinnar, og tryggingarfélagið, sögðu fyrir dómi að maðurinn beri einn ábyrgð á umferðarslysinu, og að hann hafi valdið því af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Í fyrsta lagi hafi slysið orðið vegna ölvunarástands stefnda og þess ásetnings hans að verða fyrir bifreið. Hann hafi ákveðið „þegar hann yfirgaf veitingastaðinn Péturs Pöbb að verða fyrir bifreið sem ekið var norður Höfðabakka umræddan dag og taka þeim afleiðingum sem slysið hefði í för með sér.“ Það hafi komið skýrt fram í skýrslum sem voru teknar á vettvangi af ökumanni bifreiðarinnar, vitnum og í skýrslu lögreglumanns.Háttsemin meginorsök líkamstjónsins Í niðurstöðu dómara segir að enginn möguleiki hafi verið að koma í veg fyrir áreksturinn. Maðurinn hafi hvorki sinnt þeim reglum umferðarlaga, né almennum varúðarreglum sem gæta ber við slíkar aðstæður.Þá segir einnig: „Samkvæmt framburði þriggja vitna sem staðfestur var fyrir dómi er því lýst að stefnandi hafi gengið rakleitt út á götuna án þess að líta í kringum sig. Þá kom fram í vitnisburði lögreglumanns sem ræddi við stefnda skömmu eftir slysið á slysadeild að stefndi hefði aðspurður ætlað að binda enda á líf sitt er hann gekk út á götuna,“ segir í niðurstöðu dómara. „Hann var verulega ölvaður þegar hann gekk rakleitt út á akbraut í myrkri um miðjan desember, þar sem mikil umferð var og leyfður hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund. Er háttsemi hans meginorsök líkamstjónsins, sem hann varð fyrir,“ segir í niðurstöðukafla dómara. Ökumaðurinn og tryggingarfélagið var því sýknað af kröfum mannsins. Og var lögfræðikostnaður mannsins greiddur úr ríkissjóði.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira