Skiluðu ekki fullgerðum ársreikningum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 16. október 2013 18:28 Bjarni Benediktsson, formaður SJálfstæðisflokksins hefur verið erlendis og því ekki haft tækifæri til að skrifa undir ársreikninginn. mynd/Stefán Karlsson
Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar hafa ekki enn skilað fullgerðum ársreikningi til Ríkisendurskoðunar eins og lög gera ráð fyrir. Aðrir flokkar sem buðu fram til þings hafa skilað inn fullgerðum ársreikningum. Stjórnmálaflokkar áttu að skila inn ársreikningum fyrir 1. október síðastliðinn. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn hafi skilað ársreikningnum inn vel fyrir mánaðarmótin eins og lög geri ráð fyrir. Það sem vantaði voru undirskriftir hans sjálfs og Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins en þeir hafi verið erlendis til skiptis. „Þannig að það vantar aðeins þetta formsatriði, sem við munum ljúka í þessari viku,“ segir Jónmundur. En að hans sögn kom Bjarni heim í dag, hann hefur verið á á ferðalagi, annars vegar vegna fundar hans með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington og hins vegar vegna opinberra erindagjörða í Lúxemborg. Eva Lind Þuríðardóttir, framkvæmdarstjóri Pírata, segir að flokkurinn sé búinn að skila ársreikningnum inn og benti á endurskoðanda flokksins. Endurskoðandinn segir að ársreikningnum hafi verið skilað inn fyrir mánaðarmót. Hann hafi fyrir tveimur dögum fengið tilkynningu frá Ríkisendurskoðun um að undirskriftir stjórnar vantaði, þar sé líklega um mistök við sendingu ársreikningsins að ræða. Aðrir flokkar sem ekki hafa skilað inn ársreikningum eru L-listinn, listi fólksins, Þinglistinn-framboð óháðra í Norðurþingi, Bæjarlistinn Akureyri og Fólkið í bænum, en þessir listar eiga það sameiginlegt að hafa boðið sig fram til sveitarstjórnakosninga vorið 2010.
Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Sjá meira