Lífið

Bubbi: Þetta er tækifæri lífs þíns

Ellý Ármanns skrifar
Í myndskeiðinu má sjá þegar Ísland í dag fylgdist með áheyrnarprufum sem fram fóru á Selfossi fyrr í vikunni fyrir sjónvarpsþáttinn Ísland got talent. Þá er rætt við Auðunn Blöndal, dómarana Þorgerði Katrínu, Þórunni Antoníu, Jón Jónsson og Bubba. 

„Ég meina ef þú ert ekki tilbúinn að taka þátt og það eru tíu milljónir í verðlaun, vertu þá heima. En ég segi: Þetta er tækifæri lífs þíns! Þetta eru lágmark þriggja ára laun fyrir utan það landsfrægð og allar tekjurnar og skemmtunin og gleðin sem þú átt eftir að eiga þegar þú ert búinn að vinna keppnina," segir Bubbi Morthens meðal annars í þessu skemmtilega myndskeiði. 

Skráðu þig í áheyrnarprufu - sjá hér.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×