Lífið

Húsfyllir á haustkynningu Stöðvar 2

Ellý Ármanns skrifar
Smelltu á myndina til að skoða albúmið í heild sinni.
Smelltu á myndina til að skoða albúmið í heild sinni. Myndir/Sigurjón Ragnar
Húsfyllir var á haustkynningu Stöðvar 2 í Hörpu í gær þegar glæsilegasta vetrardagskrá stöðvarinnar frá upphafi var kynnt. Gestir fylgdust með beinni útsendingu skemmtiþáttar Loga þar sem farið var yfir það besta sem Stöð 2 býður upp á í vetur en aldrei hefur úrvalið verið jafn glæsilegt, fleiri og fjölbreyttari íslenskir þættir en nokkru sinni fyrr. Bubbi Morthens tók lagið og Jón Jónsson líka. Þá sáu Stuðmenn um að halda uppi stuðinu.

Stöð 2 er í opinni dagskrá alla helgina.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar.

Hjörvar Hafliðason var ekki lengi að finna uppáhaldið sitt.
Rúnar Freyr og Guðrún Jóna bentu á uppáhalds sjónvarpsstjörnuna sína.
Steindi Jr. fann uppáhalds sjónvarpsstjörnuna sína.
Ilmur Kristjánsdóttir sem leikur í sjónvarpsþáttunum Ástríður 2 sem hefja göngu sína á morgun, sunnudag, gerði það líka. Hér stillir leikkonan sér upp með Sveppa.
Helga Arnardóttir, konan á bak við þættina Óupplýst lögreglumál sem hefja göngu sína á Stöð 2 í vetur, og unnusti hennar Reynir Örn Þrastarson.
Gestir skemmtu sér konunglega með Loga í beinni. Rikka var kát.
Bubbi Morthens tók lagið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem sest í dómarasæti í hæfileikakeppninni Ísland got talent, og Rósa Guðbjartsdóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×