Lífið

Flugi Jennifer breytt vegna Angelinu

Áttu bókað með sama flugi til London
Áttu bókað með sama flugi til London Getty/Nordicphotos
Það stefndi allt í mjög vandræðlega stund þegar Angelina Jolie og Jennifer Aniston áttu bókað í sama flug frá Los Angeles til London Heathrow með flugfélaginu British Airways nú á dögunum.

Talsmenn flugfélagsins létu umboðsmann Aniston vita og hann breytti flugina hennar í næsta dag.



Umboðsmaðurinn lét ekki Aniston vita afhverju fluginu hennar var breytt en hún slapp þá allavega við að hitta Joile en það hefur ekki verið mjög vinalegt á milli þeirra eftir að Brad Pitt skildi við Aniston árið 2005.

Pitt og Jolie höfðu þá unnið saman að myndinni Mr and Mrs Smith og er talið að ástin hafi blossað við tökur á þeirri mynd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×