Druslan stóð vel til höggsins Kristinn Schram skrifar 27. júlí 2013 08:00 Einhver elsti skráði íslenski brandarinn er sagður í Fóstbræðra sögu. Þeir sem hafa kynnt sér það sem kallað er íslenzk fyndni vænta kannski ekki mikils. En þessi er svolítið fyndinn. Sagt er frá því þegar Þorgeir Hávarsson, fyrir einum þúsund árum, drap blásaklausan mann þar sem hann studdist fram á staf sinn. Skýring Þorgeirs á þessu var einföld: Hann stóð svo vel til höggsins. Ég segi að þetta sé brandari en hvort hann var það í ritunartíma vitum við svo sem ekki. Að minnsta kosti finnst okkur mörgum þetta fyndið í dag enda fráleitt með öllu að færa ábyrgð á morði yfir á þann myrta með þeim rökum að eitthvað í fasi hans hafi boðið upp á það. Tilgangsleysi ódæðisins er síðan svo algjört að lesandanum er komið í opna skjöldu (afsakið vígamyndmálið). Valdníðslan er slík að þessi þúsaldardjókur getur ekki annað en kitlað hláturtaugarnar svo losa megi um óþægilega spennuhnútinn í maganum. Kannski býr einhver almenn siðgæðisvitund að baki. En sú vitund er reyndar ekki almennari en svo að enn getur helmingur okkar, og gott betur, ekki frjálst um höfuð strokið án þess að eiga von á því að brotið sé á okkur með sömu rökum. Á það erum við reglulega minnt þegar fórnarlömbum kynferðisglæpa, sérstaklega konum, er borið á brýn að hafa kallað yfir sig ofbeldið með klæðnaði eða framkomu. Þessi súrrealíska valdníðsla ætti í raun að kalla fram sama taugaveiklunarhláturinn og tilsvar Þorgeirs ef ekki væri fyrir þann almenna og hrollkalda veruleika sem býr að baki. Sjaldan er hann napurlegri en kringum útihátíðarnar sem nú fara í hönd. Þar skáka ofbeldismenn í skjóli slíkra viðhorfa. Í kjölfarið er svo samið um hvaða fjöldi tilkynntra nauðgana sé viðsættanlegur til að þjóðinni megi gera heyrinkunnugt að almennt hafi hátíðirnar farið vel fram. Slíka nauðgunarmenningu er ekki hægt að hlæja af sér frekar en óhugnaðinn sem af henni hlýst. Víðtækra samfélagssbreytinga er þörf svo tryggja megi að ábyrgð glæpa liggi hjá gerendum. Með Druslugöngunni tökum við skref í þá átt.Druslugangan verður farin í þriðja sinn þann 27. júlí, nk.Með Druslugöngunni viljum við færa ábyrgð kynferðisglæpa frá fórnarlömbunm og yfir á gerendur. Við viljum ekki einblína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem mögulega afsökun fyrir glæpamenn. Við viljum einfaldlega að menn hætti að nauðga.Gangan verður farin frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00, niður Skólavörðustíg, Bankastræti og mun enda á Austurvelli þar sem við taka fundarhöld og tónleikar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Einhver elsti skráði íslenski brandarinn er sagður í Fóstbræðra sögu. Þeir sem hafa kynnt sér það sem kallað er íslenzk fyndni vænta kannski ekki mikils. En þessi er svolítið fyndinn. Sagt er frá því þegar Þorgeir Hávarsson, fyrir einum þúsund árum, drap blásaklausan mann þar sem hann studdist fram á staf sinn. Skýring Þorgeirs á þessu var einföld: Hann stóð svo vel til höggsins. Ég segi að þetta sé brandari en hvort hann var það í ritunartíma vitum við svo sem ekki. Að minnsta kosti finnst okkur mörgum þetta fyndið í dag enda fráleitt með öllu að færa ábyrgð á morði yfir á þann myrta með þeim rökum að eitthvað í fasi hans hafi boðið upp á það. Tilgangsleysi ódæðisins er síðan svo algjört að lesandanum er komið í opna skjöldu (afsakið vígamyndmálið). Valdníðslan er slík að þessi þúsaldardjókur getur ekki annað en kitlað hláturtaugarnar svo losa megi um óþægilega spennuhnútinn í maganum. Kannski býr einhver almenn siðgæðisvitund að baki. En sú vitund er reyndar ekki almennari en svo að enn getur helmingur okkar, og gott betur, ekki frjálst um höfuð strokið án þess að eiga von á því að brotið sé á okkur með sömu rökum. Á það erum við reglulega minnt þegar fórnarlömbum kynferðisglæpa, sérstaklega konum, er borið á brýn að hafa kallað yfir sig ofbeldið með klæðnaði eða framkomu. Þessi súrrealíska valdníðsla ætti í raun að kalla fram sama taugaveiklunarhláturinn og tilsvar Þorgeirs ef ekki væri fyrir þann almenna og hrollkalda veruleika sem býr að baki. Sjaldan er hann napurlegri en kringum útihátíðarnar sem nú fara í hönd. Þar skáka ofbeldismenn í skjóli slíkra viðhorfa. Í kjölfarið er svo samið um hvaða fjöldi tilkynntra nauðgana sé viðsættanlegur til að þjóðinni megi gera heyrinkunnugt að almennt hafi hátíðirnar farið vel fram. Slíka nauðgunarmenningu er ekki hægt að hlæja af sér frekar en óhugnaðinn sem af henni hlýst. Víðtækra samfélagssbreytinga er þörf svo tryggja megi að ábyrgð glæpa liggi hjá gerendum. Með Druslugöngunni tökum við skref í þá átt.Druslugangan verður farin í þriðja sinn þann 27. júlí, nk.Með Druslugöngunni viljum við færa ábyrgð kynferðisglæpa frá fórnarlömbunm og yfir á gerendur. Við viljum ekki einblína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem mögulega afsökun fyrir glæpamenn. Við viljum einfaldlega að menn hætti að nauðga.Gangan verður farin frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00, niður Skólavörðustíg, Bankastræti og mun enda á Austurvelli þar sem við taka fundarhöld og tónleikar.
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar
Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar