"Ummæli imamsins byggð á mannfyrirlitningu" Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 19. júlí 2013 11:54 Múslimar á Íslandi eru komnir í hár saman vegna ummæla imamsins hjá Menningasetri múslima.
Varaformaður Félags múslima á Íslandi fordæmir ummæli Ahmad Seddeq, imam í Menningarsetri múslima, sem hann lét falla í Speglinum í Ríkisútvarpinu í gær. Þar sagði Seddeq að samkynhneigð ýti undir rán á börnum. Ahmad Seddeq er imam eða trúarleiðtogi Menningarseturs múslima. Samtökin eru með mosku í Ýmishúsinu og þykja íhaldssöm, það er, fylgja orðum kóransins, höfuðriti múslima, af mikilli alvöru. Seddeq fór mikinn í útvarpsviðtali í Speglinum á RÚV í gær. Þar sagði hann að samkynhneigð ýtti undir rán á börnum. Í yfirlýsingu sem Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi sendi frá sér, er lýst yfir vanþóknun á ásökunum imamsins í garð samkynhneigðra og er þar tekið fram að þær tengist Íslam ekki á nokkurn hátt. Það sé skýrt markmið hjá félaginu að koma í veg fyrir öfga, ofstæki og yfirgang í nafni trúarbragða. Það hafi verið á þeim forsendum sem Félag múslima á Íslandi ákvað að vísa núverandi forstöðumönnum Menningarseturs múslima úr félaginu á sínum tíma. Salmann Tamimi, varaformaður Félags múslima á Íslandi, fordæmir ummæli imamsins og fullyrðir að yfirlýsingar hans séu ekki byggðar á Íslam enda sé hvergi fjallað um slíkt í Kóraninum. Þá segir Salmann að slíkur hatursáróður sé aðeins til þess fallinn að auka sundrung í samfélaginu. Enn fremur biðst Salmann afsökunar á ummælum imamsins, þau séu byggð á mannfyrirlitningu og beri fyrst og fremst vitni persónu prestsins.
Mest lesið Vaktin: Eldgos er hafið Innlent Sóttu mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Innlent „Þetta hefur ekkert að gera með mína pólitísku hugsjón“ Innlent „Varnargarðarnir stóðu sig mjög vel“ Innlent Hraun flæðir yfir Nesveg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta er mjög erfiður dagur hjá okkur“ Innlent Sindri Freyr er látinn Innlent Allar gosmyndavélarnar á einum stað Innlent Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent Fleiri fréttir Sóttu mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi „Varnargarðarnir stóðu sig mjög vel“ „Þetta hefur ekkert að gera með mína pólitísku hugsjón“ Hraun flæðir yfir Nesveg Fyrstu atkvæðakassarnir opnaðir í Ráðhúsinu Eina leiðin inn í Grindavík um Suðurstrandarveg og innviðir í hættu „Þetta er mjög erfiður dagur hjá okkur“ Stærri atburður en við höfum séð áður Allt um enn eitt eldgosið og sjóðandi hiti á Hlíðarenda Strætó kveður Hlemm í bili Ríkisútvarpið í klemmu vegna kröfugerðar Níu krefjast þess að vera öll saman í sjónvarpsþætti „Það mesta sem við höfum séð í þessum gosum hingað til“ Lífsskráin geti auðveldað aðstandendum að taka erfiðar ákvarðanir Óvissa um hvalveiðar í sumar en ráðgjöf Hafró óbreytt Menningarelítan klofin og tekst á um ... elítur Dómur í máli Kolbeins á mánudag Mótmæla harðlega fyrirætlun Isavia um gjaldtöku við flugvöllinn Fyrstu atkvæðin komin til flokkunar í Ráðhúsinu Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér Átta hundruð manns í Bláa lóninu Gos líklegt innan stundar og Grindavík rýmd Halla les fólk eins og opna bók Allar gosmyndavélarnar á einum stað Vaktin: Eldgos er hafið Nú er hægt að fara í kynsjúkdómapróf án þess að tala við neinn Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi Líkir Katrínu við „stalínista“ og skýtur á Vilhjálm Birgisson Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Sjá meira