Ekki búið að taka ákvörðun hvort forsvarsmenn Eirar verði kærðir Valur Grettisson skrifar 5. júlí 2013 14:50 Íbúar á Eir á góðri stundu. Mynd / Heiða „
Það er búið að breyta skipulaginu, stjórn Eirar hefur samþykkt það og nú bíður það samþykktar hjá sýslumanninum á Sauðárkróki,“ segir Sigurður Rúnar Sigurjónsson, starfandi framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar, en hann tók við starfinu eftir að gríðarleg fjárhagsvandræði félagsins voru afhjúpuð. Í skýrslu Deloitte sem barst fjölmiðlum í dag er stjórnskipulag og stjórnarhættir heimilisins gagnrýnt harðlega. Þannig var það talið vægast sagt óheppilegt að sami maður væri formaður fulltrúarráðs heimilisins og formaður stjórnar einnig. Þá var auki ekki talið eðlilegt að forstjóri sinnti starfi framkvæmdastjóra á sama tíma líkt og viðgekkst áður en félagið fór í greiðslustöðvun vegna gríðarlega hárra skulda. Skýrsla Deloitte um Eir er svört. Þar kom meðal annars fram að forstjóri og fjármálastjóri félagsins hefðu eytt peningum úr svokölluðum þróunarsjóði, sem er í daglegu tali nefndur bleyjusjóður, í utanlandsferðir og uppihald. Í skýrslunni kemur fram að í tíð fyrrverandi forstjóra heimilisins, Sigurðar Helga Guðmundssonar, hafi hann, auk fjármálastjórans og framkvæmdastjóra, eytt 2,7 milljónum króna í utanlandsferðir. Þá keypti Sigurður Helgi gjafabréf til útlanda og gaf tengdasyni sínum sem vann störf fyrir félagið á sínum tíma. Í skýrslu Deloitte er fjallað sérstaklega um auðgunarbrot og umboðssvik án þess að því sé haldið fram að athafnir fyrri stjórnenda falli undir þær skilgreiningar. Þegar Sigurður Rúnar er spurður beint út hvort það standi til að kæra fyrrverandi forsvarsmenn heimilisins til lögreglu vegna málsins, svarar hann: „Það er stjórnin sem tekur ákvörðun um framhald málsins.“ Stjórnin á ekki að koma saman fyrr en í ágúst, en að sögn Sigurðar Rúnars, er líklegt að stjórnin komi fyrr saman vegna skýrslunnar. Eir er sjálfseignarstofnun en stofnaðilar eru meðal annars Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes, ýmis stéttarfélög og lífeyrissjóðir. Eir rekur meðal annars 173 hjúkrunarrými og 206 öryggisíbúðir, sem eru íbúðir með aðgang og nálægð við ýmsa þjónustu sem nýtist eldri borgurum. Þrír stjórnarmenn úr Eir kærðu málið til sérstaks saksóknara í desember á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu er málið enn til meðferðar hjá embættinu.
Tengdar fréttir Bíða enn eftir gögnum frá Eir Nokkrir fyrrverandi íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir, sem enn eiga eftir að fá greiddar um samtals tvöhundruð milljónir fyrir búseturétt, eru ósáttir við sáttarleið stjórnarinnar. Lögmaður segir gjaldþrot ekki endilega verri kostinn en mjög illa hefur gengið að fá gögn frá heimilinu til að varpa ljósi á stöðuna. 6. mars 2013 20:43 Stjórnarmaður Eirar segir gögn hafa verið afhent saksóknara í leyfisleysi Fulltrúaráðsfundur hjúkrunarheimilisins Eirar stendur nú yfir, þar verður meðal annars rætt um að víkja stjórn Eirar í heilu lagi frá. 14. desember 2012 09:45 Stjórnarmenn í Eir leituðu til sérstaks saksóknara Þrír stjórnarmenn úr Eir funduðu í dag með fulltrúum sérstaks saksóknara og afhentu þeim gögn um rekstur heimilisins síðasta árið. Stefán Benediktsson, einn stjórnarmannanna, segir að þarna sé um að ræða fundargögn, gögn úr bókhaldi, minnisblöð og tölvupóstar sem rekji nokkuð vel þá atburðarrás sem stjórnarmenn hafa yfirsýn yfir síðastliðið ár. 11. desember 2012 18:18 Segir ekkert hæft í því að Eir hafi misnotað fé úr framkvæmdasjóði aldraðra Sigurður Rúnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar, segir ekkert hæft í því að heimilið hafi misnotað fé frá framkvæmdasjóði aldraðra, eins og fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar . 17. desember 2012 17:11 Ríkið heggur ekki á hnútinn Allar hugmyndir um björgun hjúkrunarheimilsins Eirar, sem fela í sér að ríkið leggi til peninga, hafa verið slegnar út af borðinni. Búist er við átökum á fulltrúaráðsfundi sem haldinn verður á föstudag. 10. desember 2012 19:49 Heimilisfólki á Eir stillt upp við vegg Ríkið ætlar ekki að hlaupa undir bagga með hjúkrunarheimilinu Eir. Samþykki íbúar ekki langtímaskuldabréf blasir við gjaldþrot Eirar 28. febrúar 2013 18:25 Sighvatur segir marga í sömu stöðu og fólkið á Eir Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra Alþýðuflokksins segist vita til þess að stór hópur eldri borgara sé í svipuðum sporum og þeir sem gerðu samninga við hjúkrunarheimilið EIR og töpuðu stórum hluta af ævisparnaði sínum. 4. júní 2013 16:29 Í mál við Eir vegna innlyksa sparifjár Maður og kona sem eiga inni tugi milljóna hjá hjúkrunarheimilinu Eir telja kröfuhöfum hafa verið mismunað. Eir greiddi niður lán á meðan fólk sem átti inni búseturéttargreiðslur fékk ekkert. 11 manns eiga þegar að hafa fengið 200 milljónir. 7. mars 2013 06:00 Krefja Eir um styrki sem þeir telja að hafi verið misnotaðir Stjórn framkvæmdastjóðs aldraðara ætlar að krefja hjúkrunarheimilið Eir um endurgreiðslu styrkja sem rökstuddur grunur er fyrir að hafi verið misnotaðir. Eir fékk um hálfan milljarð króna í styrki frá sjóðnum á síðasta áratug. 17. desember 2012 12:54 Skipt út úr stjórn og fulltrúaráði Eirar Flestum ef ekki öllum fulltrúum í fulltrúaráði Hjúkrunarheimilisins Eirar verður skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið verður skipuð ný stjórn. Samstaða er meðal flestra um að óska eftir rannsókn á fjármálum hjúkrunarheimilisins á næstunni. 14. desember 2012 10:00 Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira
Bíða enn eftir gögnum frá Eir Nokkrir fyrrverandi íbúar á hjúkrunarheimilinu Eir, sem enn eiga eftir að fá greiddar um samtals tvöhundruð milljónir fyrir búseturétt, eru ósáttir við sáttarleið stjórnarinnar. Lögmaður segir gjaldþrot ekki endilega verri kostinn en mjög illa hefur gengið að fá gögn frá heimilinu til að varpa ljósi á stöðuna. 6. mars 2013 20:43
Stjórnarmaður Eirar segir gögn hafa verið afhent saksóknara í leyfisleysi Fulltrúaráðsfundur hjúkrunarheimilisins Eirar stendur nú yfir, þar verður meðal annars rætt um að víkja stjórn Eirar í heilu lagi frá. 14. desember 2012 09:45
Stjórnarmenn í Eir leituðu til sérstaks saksóknara Þrír stjórnarmenn úr Eir funduðu í dag með fulltrúum sérstaks saksóknara og afhentu þeim gögn um rekstur heimilisins síðasta árið. Stefán Benediktsson, einn stjórnarmannanna, segir að þarna sé um að ræða fundargögn, gögn úr bókhaldi, minnisblöð og tölvupóstar sem rekji nokkuð vel þá atburðarrás sem stjórnarmenn hafa yfirsýn yfir síðastliðið ár. 11. desember 2012 18:18
Segir ekkert hæft í því að Eir hafi misnotað fé úr framkvæmdasjóði aldraðra Sigurður Rúnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar, segir ekkert hæft í því að heimilið hafi misnotað fé frá framkvæmdasjóði aldraðra, eins og fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar . 17. desember 2012 17:11
Ríkið heggur ekki á hnútinn Allar hugmyndir um björgun hjúkrunarheimilsins Eirar, sem fela í sér að ríkið leggi til peninga, hafa verið slegnar út af borðinni. Búist er við átökum á fulltrúaráðsfundi sem haldinn verður á föstudag. 10. desember 2012 19:49
Heimilisfólki á Eir stillt upp við vegg Ríkið ætlar ekki að hlaupa undir bagga með hjúkrunarheimilinu Eir. Samþykki íbúar ekki langtímaskuldabréf blasir við gjaldþrot Eirar 28. febrúar 2013 18:25
Sighvatur segir marga í sömu stöðu og fólkið á Eir Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra Alþýðuflokksins segist vita til þess að stór hópur eldri borgara sé í svipuðum sporum og þeir sem gerðu samninga við hjúkrunarheimilið EIR og töpuðu stórum hluta af ævisparnaði sínum. 4. júní 2013 16:29
Í mál við Eir vegna innlyksa sparifjár Maður og kona sem eiga inni tugi milljóna hjá hjúkrunarheimilinu Eir telja kröfuhöfum hafa verið mismunað. Eir greiddi niður lán á meðan fólk sem átti inni búseturéttargreiðslur fékk ekkert. 11 manns eiga þegar að hafa fengið 200 milljónir. 7. mars 2013 06:00
Krefja Eir um styrki sem þeir telja að hafi verið misnotaðir Stjórn framkvæmdastjóðs aldraðara ætlar að krefja hjúkrunarheimilið Eir um endurgreiðslu styrkja sem rökstuddur grunur er fyrir að hafi verið misnotaðir. Eir fékk um hálfan milljarð króna í styrki frá sjóðnum á síðasta áratug. 17. desember 2012 12:54
Skipt út úr stjórn og fulltrúaráði Eirar Flestum ef ekki öllum fulltrúum í fulltrúaráði Hjúkrunarheimilisins Eirar verður skipt út á fundi í dag. Í kjölfarið verður skipuð ný stjórn. Samstaða er meðal flestra um að óska eftir rannsókn á fjármálum hjúkrunarheimilisins á næstunni. 14. desember 2012 10:00