Lífið

Á frumsýningu eftir brjóstaaðgerð

Angelina Jolie verður á frumsýningunni í London.
Angelina Jolie verður á frumsýningunni í London. Nordicphotos/getty

Angelina Jolie verður viðstödd frumsýningu í London á nýjustu kvikmynd unnusta síns Brads Pitt, World War Z, á sunnudaginn.

Þetta verður í fyrsta sinn sem hún kemur fram á svo stórum opinberum viðburði eftir að hún gekkst undir aðgerð þar sem hún lét fjarlægja bæði brjóst sín af ótta við krabbamein.



Pitt hrósaði unnustu sinni eftir að hún tilkynnti um aðgerðina. „Eftir að hafa orðið vitni að þessu finnst mér ákvörðun Angie, rétt eins og svo margra annarra, bera vott um  sannkallaða hetjudáð,“ sagði leikarinn.



Angelina Jolie syrgir um þessar mundir frænku sína Debbie Martins, sem lést af völdum brjóstakrabbameins síðasta sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×