Kemur ekki til greina að færa leikinn 25. apríl 2013 22:13 Sigga og aðrir stuðningsmenn Grindavíkur standa hér upp í Ásgarði í kvöld. Þau verða væntanlega að standa allan leikinn á sunnudag. Mynd/Daníel
Strax eftir leik Stjörnunnar og Grindavíkur í kvöld fóru menn að velta því fyrir sér hvernig Grindvíkingar ætli sér að koma öllum þeim áhorfendum fyrir sem vilja komast á oddaleikinn á sunnudag. Íþróttahúsið í Grindavík, Röstin, er lítið og aðeins ein stúka. Ekki er hægt að koma að fólki fyrir aftan körfurnar og í raun ekki hægt að gera neitt til að bæta við áhorfendum. Það vilja klárlega fleiri komast á leikinn en munu gera það á endanum. Kemur því til greina að færa leikinn? "Það kemur ekki til greina að færa leikinn. Það þýðir ekki einu sinni að ræða það. Við ætlum að skrifa nýjan kafla í okkar sögu með því að lyfta titli á heimavelli. Það höfum við aldrei gert áður," sagði Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, við Vísi í kvöld en hvað kemur hann mörgum í húsið? "Við komum um 1.000 manns í húsið þegar þétt er setið. Við gætum líka farið þá leið að láta fólk standa og líklegt að við þurfum að gera það til þess að sem flestir komist á völlinn," sagði Óli Björn en hann treysti sér ekki til þess að spá um hvað hann kæmi þá mörgum í húsið. Miðasalan á leikinn hefst á morgun og þá er um að gera að hafa hraðar hendur. "Við byrjum örugglega með forsölu heima á morgun og Stjarnan fær svo einhverja miða frá okkur. Ég hef samt orðið fyrir miklum vonbrigðum með mætinguna úr Garðabæ. Sérstaklega í fyrsta leiknum en þá mættu mjög fáir Stjörnumenn. Þeir hljóta að vilja samt fjölmenna á sunnudaginn."
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Grindavík 82-88 Grindavík tryggði sér oddaleik í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta þegar liðið bara sigur úr býtum gegn Stjörnunni, 88-82, í fjórða leik liðanna. Þau þurfa því að mætast aftur á sunnudaginn í fimmta leiknum og hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Aaron Broussard, var stórkostlegur fyrir Grindvíkinga en hann gerði 37 stig. Justin Shouse var með 26 stig fyrir Stjörnuna. 25. apríl 2013 13:17 Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Grindavík 82-88 Grindavík tryggði sér oddaleik í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta þegar liðið bara sigur úr býtum gegn Stjörnunni, 88-82, í fjórða leik liðanna. Þau þurfa því að mætast aftur á sunnudaginn í fimmta leiknum og hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Aaron Broussard, var stórkostlegur fyrir Grindvíkinga en hann gerði 37 stig. Justin Shouse var með 26 stig fyrir Stjörnuna. 25. apríl 2013 13:17