Lífið

Selja mynd af hálfnaktri Angelinu Jolie

Falleg mynd af leikkonunni Angelinu Jolie er meðal ljósmynda sem verða boðnar upp í uppboðshúsinu Christie’s í London í næsta mánuði.

Myndin hefur aldrei verið birt opinberlega en á henni er Angelina ber að ofan. Myndin var tekin af ljósmyndaranum David LaChapelle og er búist við því að eitthvað á milli fimm til sex milljónir króna fáist fyrir gripinn.

Yndisleg mynd.
Einnig verður önnur mynd af Angelinu boðin upp í sama holli en á henni stillir Angelina sér upp með sínum heittelskaða, leikaranum Brad Pitt. Myndin var tekin af Steven Klein árið 2005, áður en Angelina og Brad staðfestu að þau væru byrjuð saman.

Myndin af Angelinu og Brad var tekin fyrir W Magazine.
Brad og Angelina eiga nóg af peningum - og nóg af börnum.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×