Aldrei séð jafn langa einangrun fanga nema í Guantanomo Bay Hjörtur Hjartarson skrifar 25. mars 2013 20:00 Gísli H. Guðjónsson hefur ekki vitað um aðra eins einangrun nema í Guantanamo Bay.
Veigamiklar ástæður eru fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálið verði tekin upp á ný í ljósi þess að það þykir hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður sakborninga var óáreiðanlegur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var í innanríkisráðuneytinu í dag. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra skipaði starfshópinn í október 2011 og var honum falið að fara yfir rannsókn málsins í heild sinni, en þó sérstaklega að þeim þætti sem snéru að framkvæmd hennar, á sínum tíma. Í skýrslunni sem telur nærri 500 blaðsíður, kemur fram að sakamálarannsókn hófst ekki fyrr en tveimur árum eftir hvarf Guðmundar, og einu ári eftir hvarf Geirfinns. Þá hafi tilgáta um ákveðna atburðarrás í Geirfinnsmálinu verið komin fram hjá rannsóknarlögreglunni í Reykjavík áður en en hin sakfelldu voru fyrst yfirheyrð. „Varðandi rannsóknina þá komumst við að þeirri niðurstöðu að hún hafi verið of einstrengingsleg og að lögreglan hafi ekki veitt eftirtekt þáttum sem gáfu möguleikann á að því að sakborningur væru saklausir," sagði Soffía Sigurðardóttir, formaður starfshópsins. Helstu niðurstöður starfshópsins eru þær að það sé hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður sakborninga hafi verið óáreiðanlegur eða falskur. Gísli H. Guðjónsson, réttarsálfræðingur vann með starfshópnum en hann er mikilsvirtur í sínu fagi og hefur unnið að mörg hundruð málum þar sem falskar játningar eru til umfjöllunar. Hann segir Guðmundar- og Geirfinnsmálið algjörlega einstakt. „En einangrunin er dálítið sláandi. Ég hef ekki unnið að neinu máli, neins staðar í heimi, þar sem það hefur verið svona mikið um einangrun á sakborningum eins og þessum tveimur málum. Það er mjög óvenjuleg, nema í hryðjuverkamálum, að það sé lengra en 1-2 vikur. Þegar við lítum á vikur, mánuði eða ár, þá veit ég ekki nein önnur mál nema í Guantanomo Bay," sagði Gísli H. Guðjónsson, réttarsálfræðingur á fundinum. Ekki er með öllu ljóst hvert framhald málsins verður en þrjár leiðir koma til greina að sögn Ögmundar Jónasson, innanríkisráðherra. „Nú mun ríkissaksóknari gaumgæfa málið. Skýrslunni hefur verið komið til embættisins. Síðan er það sakborninganna að ákveða hvað þeir vilja gera í málinu og þá, hugsanlega leita eftir fjárstuðningi sem nefndin telur eðlilegt að yrði inntur af hendi. Og ef að ekkert af þessu komi til þykir nefndinni eðlilegt að alþingi íhugi að leggja fram lagafrumvarp um upptöku málsins. En hvað sem framhaldið verður þá er þessi niðurstaða, hún er mikilvægur áfangi í lífi þeirra sem hlut eiga að máli og hugsanlega einnig í okkar réttarsögu," sagði Ögmundur. Ef ríkissaksóknari kýs að fara fram á endurupptöku málsins munu einungis mál þeirra sakborninga sem eru á lífi verða tekin fyrir. Sævar Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson eru látnir og samkvæmt lögunum í dag er ekki hægt að taka upp mál látinna einstaklinga. Sævar lést fyrir fjórum árum og Tryggvi fyrir tveimur. Báðir héldu þeir fram sakleysi sínu til dauðadags og barðist Sævar lengi fyrir endurupptöku málsins. Við endurupptöku gefur ríkissaksóknari út nýja ákæru og fer um leið fram á sýknudóm. Í lögunum í dag kemur fram að ekki sé hægt að fara fram á endurupptöku mála látinna einstaklinga, hvort heldur sem ríkissaksóknari fer fram á endurupptöku eða aðstandandi. Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, segir það vissulega vonbrigði. Hann fagnar engu að síður niðurstöðu starfshópsins. „Það er hægt að semja ný lög einnig, ég myndi þrýsta á það ef ég tel það nauðsynlegt. En ég veit ekkert að svo stöddu, ég ætla að fara rækilega yfir það. Faðir minn lifði fyrir að hreinsa nafn sitt af þessum málum og skýrsla starfshópsins gerir það," sagði Hafþór. Ögmundur Jónasson, innanríksráðherra vonast til að farsæl lausn finnist á máli þeirra Sævars og Tryggva. „Það eru ákveðnir erfiðleikar á ferðinni og þá hljótum við að horfa til lagafrumvarpsins líka en ég ætla ekkert að gefa mér neina niðurstöðu hvað þetta snertir. Þetta er nokkuð sem þarf einfaldlega að gaumgæfa og allir hlutaðeigendur munu gera," sagði Ögmundur að lokum.
Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira