Lífið

Konunglega barnið lætur finna fyrir sér

Hertogynjan Kate Middleton heimsótti Grimsby á Englandi í gær og leit stórkostlega út. Hún talaði við aðdáendur sína, meðal annars um ófætt barn sitt.

Meðal þeirra sem hún talaði við var hinn 42ja ára Bobbie Brown sem spurði hana hvort barnið hreyfði sig mikið eða sparkaði.

Hvers manns hugljúfi.
"Hún sagði: Já. Mjög mikið," segir Bobbie.

Hress á því, þau Vilhjálmur og Kate.
Kate eyddi miklum tíma í að tala við börnin á staðnum og greinilegt að móðureðlið er farið að segja til sín.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×