Körfubolti

Klappstýra skoraði ótrúlega körfu frá miðju

Klappstýran Ashlee Arnau, nemi við William Carey-háskólann í Bandaríkjunum, skoraði eina flottustu körfu sem sést hefur lengi.

Körfuna skoraði hún í hálfleik í leik hjá körfuboltaliði skólans. Voru það klárlega flottustu tilþrif kvöldsins.

"Ég æfi þetta nú ekkert sérstaklega," sagði Arnau hress eftir leikinn.

Tilþrifin má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×