Reglur beygðar fyrir útvalda höfunda Kjartan Atli Kjartansson og Ugla Egilsdóttir skrifar 21. desember 2013 08:00 Gæði og fjölbreytni Hera Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri Söngvakeppninnnar 2014. „
Já, ég skilaði laginu inn með tölvupósti,“ segir Jóhann Helgason lagahöfundur um lagið Von, sungið af Gissuri Páli Gissurarsyni, sem Jóhann sendir í Söngvakeppnina 2014, keppni um framlag Íslands í Eurovision. Jóhann var einn af þeim höfundum sem voru sérstaklega hvattir af dagskrárdeild RÚV til þess að senda lag í keppnina. Í reglum um Söngvakeppni RÚV kemur það skýrt fram að öllum lögum skuli skilað á geisladiski, annars teljist þau ekki gjaldgeng. Þar kemur einnig fram að valnefnd keppninnar skuli eingöngu fá að vita leyninöfn höfunda og heiti laga. Höfundar sem eru hvattir til þess að senda lög í keppnina virðast aftur á móti ekki alltaf þurfa að lúta sömu lögmálum og aðrir, sem senda inn lög óbeðnir. Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar 2014, segir að lög þeirra höfunda sem hvattir séu til að senda inn séu metin sérstaklega. „Þeir höfundar sem við hvetjum til þess að taka þátt skila inn til yfirstjórnar dagskrárdeildar RÚV. Það ríkir ekki nafnleynd yfir þeirra framlagi,“ útskýrir Hera en lög þeirra sem senda inn óbeðnir fara í annan pott sem heyrir undir valnefnd keppninnar. Lög eru valin úr hvorum pottinum fyrir sig og steypt saman í einn úrslitapott. Þaðan eru tíu lög valin til þess að taka þátt í undanúrslitum Söngvakeppninnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru að minnsta kosti tvö þeirra laga sem komust áfram eftir höfunda sem hvattir voru til þess að taka þátt. Alls bárust Ríkisútvarpinu 297 lög og voru 12 höfundar hvattir til þess að taka þátt, en óvíst er hvort þeir sendu allir lag í keppnina.Von Jóhann vill komast í Eurovision.Hera segir að þetta fyrirkomulag keppninnar; að sumir höfundar séu hvattir til þess að taka þátt, sé til þess að tryggja gæði og fjölbreytni. „Okkur barst fullt af flottum lögum, frá báðum hópum höfunda. Við völdum það besta,“ útskýrir Hera. Hún segist ekki hafa vitneskju um að framlagi Jóhanns hafi verið skilað á annan hátt en þeirra höfunda sem sendu inn óbeðnir. Þegar Jóhann var beðinn um að taka þátt sagðist hann vera til í það með þeim fyrirvara að honum tækist að semja heppilegt lag. „Stundum heppnast að semja eftir pöntun, og stundum ekki.“ Hann var ánægður með útkomuna og sló þess vegna til. „Ég bjóst alls ekki við að það tækist, ég er ekki búinn að vera í þannig formi.“ Hann er ánægður með það hvernig Ríkisútvarpið heldur á spöðunum að þessu sinni. „Þegar ég tók þátt í gamla daga þurfti maður nánast að borga með sér og var alveg launalaus sem höfundur. Í þetta sinn fá allir laun fyrir, þar með taldir höfundar. Ég hefði sýnt keppninni meiri áhuga undanfarin ár ef ég hefði vitað af þessu.“
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira