Úrbætur á lyflækningasviði Landspítala Kristján Þór Júlíusson skrifar 13. september 2013 06:00 Við undirritaður og forstjóri Landspítala kynntum í gær sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir til að styrkja starfsemi lyflækningasviðs Landspítala. Það dylst engum að ástandið er alvarlegt og aðgerða þörf. Þetta taka heilbrigðisyfirvöld alvarlega og ég legg áherslu á að nú verði unnið hratt og örugglega að úrbótum. Tuttugu læknar stóðu saman að grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær þar sem staðan á lyflækningadeild er rakin. Fyrirhugaðar aðgerðir til úrbóta sem ég og forstjóri LSH kynntum taka á flestum ef ekki öllum þeim þáttum sem læknarnir lýsa áhyggjum sínum yfir. Þótt það taki einhvern tíma að hrinda fyrirhuguðum úrbótum í framkvæmd bind ég miklar vonir við að með þessu takist að snúa vondri þróun við og byggja upp öflugt lyflækningasvið á nýjan leik. Dregið verður úr álagi með fleiri hjúkrunarrýmum til að flýta fyrir útskrift sjúklinga að lokinni meðferð, fagleg forysta sviðsins verður styrkt, framhaldsmenntun í almennum lyflækningum verður efld með opinberri viðurkenningu yfirstjórnar heilbrigðis- og menntamála og auknum fjármunum. Starfshópi verður falið að gera tillögur um aukið hlutverk LSH sem háskólasjúkrahús og leiðir til að tryggja nýliðun í lyflækningum. Stefnt er að því að nýta betur krafta og hæfni ýmissa fagstétta með markvissum aðgerðum og þannig munu læknar fá aukinn stuðning við störf sín. Bráðastarfsemi LSH verður styrkt og hún sameinuð á einum stað. LSH mun í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld halda áfram að endurskoða skipulag læknisþjónustu á Íslandi í því skyni að bæta aðgengi og gæði þjónustunnar um allt land, ásamt því að auka hagkvæmni. Fagleg, örugg og aðgengileg heilbrigðisþjónusta er mikilvægt hagsmunamál allra landsmanna og við búum að mörgu leyti að mjög góðri heilbrigðisþjónustu sem við getum verið stolt af. Höfum hugfast að þetta er ekki sjálfgefið því víðtæk og sérhæfð heilbrigðisþjónusta með miklum gæðum eins og við þekkjum er geysilega kostnaðarsöm fyrir fámenna þjóð. Þetta er engu að síður það sem við viljum og með réttu hugarfari, mikilli vinnu og bestu mögulegri nýtingu fjármuna getum við í sameiningu tryggt áframhaldandi öfluga heilbrigðisþjónustu til frambúðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Við undirritaður og forstjóri Landspítala kynntum í gær sameiginlega yfirlýsingu um aðgerðir til að styrkja starfsemi lyflækningasviðs Landspítala. Það dylst engum að ástandið er alvarlegt og aðgerða þörf. Þetta taka heilbrigðisyfirvöld alvarlega og ég legg áherslu á að nú verði unnið hratt og örugglega að úrbótum. Tuttugu læknar stóðu saman að grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær þar sem staðan á lyflækningadeild er rakin. Fyrirhugaðar aðgerðir til úrbóta sem ég og forstjóri LSH kynntum taka á flestum ef ekki öllum þeim þáttum sem læknarnir lýsa áhyggjum sínum yfir. Þótt það taki einhvern tíma að hrinda fyrirhuguðum úrbótum í framkvæmd bind ég miklar vonir við að með þessu takist að snúa vondri þróun við og byggja upp öflugt lyflækningasvið á nýjan leik. Dregið verður úr álagi með fleiri hjúkrunarrýmum til að flýta fyrir útskrift sjúklinga að lokinni meðferð, fagleg forysta sviðsins verður styrkt, framhaldsmenntun í almennum lyflækningum verður efld með opinberri viðurkenningu yfirstjórnar heilbrigðis- og menntamála og auknum fjármunum. Starfshópi verður falið að gera tillögur um aukið hlutverk LSH sem háskólasjúkrahús og leiðir til að tryggja nýliðun í lyflækningum. Stefnt er að því að nýta betur krafta og hæfni ýmissa fagstétta með markvissum aðgerðum og þannig munu læknar fá aukinn stuðning við störf sín. Bráðastarfsemi LSH verður styrkt og hún sameinuð á einum stað. LSH mun í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld halda áfram að endurskoða skipulag læknisþjónustu á Íslandi í því skyni að bæta aðgengi og gæði þjónustunnar um allt land, ásamt því að auka hagkvæmni. Fagleg, örugg og aðgengileg heilbrigðisþjónusta er mikilvægt hagsmunamál allra landsmanna og við búum að mörgu leyti að mjög góðri heilbrigðisþjónustu sem við getum verið stolt af. Höfum hugfast að þetta er ekki sjálfgefið því víðtæk og sérhæfð heilbrigðisþjónusta með miklum gæðum eins og við þekkjum er geysilega kostnaðarsöm fyrir fámenna þjóð. Þetta er engu að síður það sem við viljum og með réttu hugarfari, mikilli vinnu og bestu mögulegri nýtingu fjármuna getum við í sameiningu tryggt áframhaldandi öfluga heilbrigðisþjónustu til frambúðar.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar