Hætt við milljarðakröfur á Stoðir 15. janúar 2013 07:00 Stoðir hét áður FL group Skattayfirvöld framkvæmdu húsleit í höfuðstöðvum þess í nóvember 2008. Rannsókn skattamálanna lauk í desember 2010.fréttablaðið/arnþór birkisson
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að endurákvarða ekki skatta á Stoðir, sem áður hét FL Group, vegna meintra vangreiðslna á tekjuskatt fyrir árið 2006. Á því ári hagnaðist félagið um 44,6 milljarða króna og því er ljóst að um margra milljarða króna endurgreiðslu hefði verið að ræða ef endurákvarðað hefði verið á Stoðir. Með þessu er að mestu lokið skattrannsókn á Stoðum/FL Group sem hófst með húsleit í höfuðstöðvum félagsins 11. nóvember 2008. Ef allir angar málsins hefðu farið á versta veg fyrir Stoðir/FL Group hefði félagið þurft að greiða íslenska ríkinu 12,9 milljarða króna.Snerist fyrst um rekstrarkostnað Upphafleg rannsókn skattayfirvalda beindist að rekstrarkostnaði Stoða/FL Group á árinu 2007, en samkvæmt ársreikningi var hann 6,2 milljarðar króna. Þegar rannsókn skattrannsóknarstjóra lauk í desember 2010 sneri niðurstaðan ekki að rekstrarkostnaðinum, heldur meintum vangreiddum tekju- og virðisaukaskatti. Tekjuskattshlutinn snýst um að félagið hafi ekki greitt tekjuskatt af hagnaði sínum árið 2006, þegar það hagnaðist um 44,6 milljarða króna. Virðisaukaskattshlutinn snerist síðan um að félagið skuldaði slíkan skatt, meðal annars vegna aðkeyptrar þjónustu af erlendum dótturfélögum sínum á árunum 2006 og 2007. Stoðir/FL Group fengu endurskoðunarfyrirtækið KPMG til að meta hver möguleg áætluð skattaskuld félagsins gæti orðið ef öll málin færu á versta veg fyrir það. Niðurstaðan var sú að þá myndu Stoðir skulda skattayfirvöldum, og þar af leiðandi ríkissjóði, 12,9 milljarða króna. Langstærsti hluti þeirrar skuldar myndi skapast vegna tekjuskattshluta rannsóknarinnar.Íslenska ríkið á í Stoðum Í júní 2011 úrskurðaði Ríkisskattstjóri að Stoðir/FL Group skulduðu 741 milljón króna í virðisaukaskatt. Til að gera kröfuna upp gaf Stoðir/FL Group út nýtt hlutafé upp á 37 milljónir króna að nafnvirði og afhenti íslenska ríkinu. Ástæðan er sú að stjórn félagsins telur allar skattakröfur vera samningskröfur og því falli þær undir nauðasamning félagsins sem gerður var sumarið 2009. Samkvæmt honum eru allar óveðtryggðar kröfur gerðar upp með einnar milljónar króna eingreiðslu og að fimm prósent af viðbótarkröfunni fáist greidd með almennum hlutum í Stoðum/FL Group. Ríkið hefur ekki fallist á þennan skilning Stoða/FL Group og því hefur félagið stefnt ríkinu fyrir dómstóla til að fá uppgjör sitt á kröfunni viðurkennt. Málið var tekið fyrir í gær.Tekjuskattsmálinu lokið Stoðum/FL Group barst hins vegar tilkynning frá Ríkisskattstjóra í lok síðasta árs um að tekjuskattshluta málsins væri lokið. Niðurstaða embættisins er sú að endurákvarða ekki skatta á félagið vegna þessa máls. Í árshlutareikningi Stoða fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2011, sem er síðasta birta uppgjör félagsins, er sérstaklega fjallað um skattrannsókn yfirvalda á félaginu. Þar segir að þar sem hagnaður Stoða hafi verið mikill árið 2006 gæti tekjuskattsrannsóknin haft umtalsverð fjárhagsleg áhrif á félagið. Helstu eignir Stoða eru 33,6 prósenta hlutur í TM, sem til stendur að selja í aðdraganda skráningar félagsins á markað á þessu ári, og 40,3 prósenta hlutur í drykkjarvöruframleiðandanum Refresco.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Sjá meira