Skoðun

Laun stjórnarformanns FME

Aðalsteinn Leifsson skrifar

Eygló Harðardóttir, félagsmála- og húsnæðismálaráðherra, skrifar pistil undir fyrirsögninni „Alþingi og kyn“ á vef sinn. Þar vekur hún athygli á því að konur velja fremur störf við velferðarmál og að störf á því sviði eru verr launuð en ýmis störf þar sem karlmenn eru í meirihluta. Þessu þurfi að breyta. Eygló dregur fram mun á greiðslum fyrir stjórnarformennsku í Fjármálaeftirlitinu og Tryggingastofnun ríkisins og skrifar: „Stjórnarformaður FME fær 600.000 kr. á mánuði en stjórnarformaður Tryggingastofnunar ríkisins fær greiddar 60.000 kr. á mánuði. Eru verkefni FME virkilega tíu sinnum erfiðari eða virðingarmeiri en verkefni Tryggingastofnunar? Nei, ég held nú síður.“

Bað um launalækkun

Þegar ég tók við stjórnarformennsku í FME í júní 2011 var greiðsla fyrir vinnuna 600.000 kr. Ein af ástæðunum fyrir þeirri háu greiðslu var sú mikla vinna sem staðan krafðist vegna endurreisnar fjármálakerfisins og FME. Haustið 2012 bað ég sjálfur ráðherra um að lækka launin um þriðjung vegna þess að uppbygging fjármálakerfisins og FME gengi vel og því mætti búast við að álagið myndi minnka. Með þessu vildi ég undirstrika að sýnd væri ráðdeild í störfum FME og gefa fordæmi um að gæta nægjusemi í launum á fjármálamarkaði. Ráðherra varð við þessu og því eru laun stjórnarformanns 400.000 kr. – ekki 600.000 kr.

Velferð ekki mjúkur málaflokkur

Ég vil taka undir orð Eyglóar um að „…það er löngu kominn tími til að við áttum okkur á að velferðarmálin eru ekki neinn mjúkur málaflokkur“. Stundum kann að eiga við að lækka laun, eins og ég hef gert í tilfelli stjórnarformanns FME, og víða þarf að hækka laun í störfum við velferðarmál.




Skoðun

Sjá meira


×