Gefum heilanum gaum: Aðlögunarhæfni heilans Brynja Björk Magnúsdóttir skrifar 13. mars 2013 06:00 „Heilinn látti mig gera þetta,“ var svar dóttur minnar þegar henni var bent á hegðun sem ekki var talin æskileg. Móðirin átti erfitt með að rökræða þetta enda hafði dóttirin nokkuð til síns máls. Heili fjögurra ára barns á eftir að taka út dágóðan þroska og læra af umhverfi sínu. Meðal annars má búast við að ákveðnar taugabrautir styrkist eftir því sem hún heyrir oftar óreglulegu sögnina „lét“ og því læri heilinn að nota þá beygingarmynd í stað hinnar reglulegu. Auk þess eiga ennisblöðin eftir að þroskast allt fram á fullorðinsár en þau hafa meðal annars það hlutverk að hamla hegðun sem talin er óæskileg í umhverfi barnsins, hegðun sem oft og tíðum er stýrt af tilfinningum okkar. Heili barns býr því yfir ótrúlegum hæfileika til að aðlagast umhverfi sínu. Lengi vel var talið að heili fullorðinna væri lítt sveigjanlegur og missti hæfnina til að aðlagast umhverfinu með aldrinum. Sýnt hefur verið fram á að svo er ekki. Heilann má sveigja til fram eftir öllum aldri og ætti í raun að leggja jafn ríka áherslu á heilaleikfimi og líkamsæfingar. Rannsóknir á síðustu árum hafa sýnt fram á að breytingar verða á heila okkar við margvíslega hugarþjálfun. Sem dæmi þá virðist regluleg iðkun athafna sem reyna á hugann og ögra honum geta hægt á heilahrörnun þegar árin færast yfir. Að auki virðist hreyfing, sér í lagi loftháð þjálfun, hafa þau áhrif að mælanleg stækkun verður meðal annars á svokölluðum dreka, svæði sem hefur með minningar okkar að gera. Heilinn er sveigjanlegur og hefur hæfni til að aðlagast umhverfi sínu alla ævi. Því er mikilvægt að hlúa vel að honum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
„Heilinn látti mig gera þetta,“ var svar dóttur minnar þegar henni var bent á hegðun sem ekki var talin æskileg. Móðirin átti erfitt með að rökræða þetta enda hafði dóttirin nokkuð til síns máls. Heili fjögurra ára barns á eftir að taka út dágóðan þroska og læra af umhverfi sínu. Meðal annars má búast við að ákveðnar taugabrautir styrkist eftir því sem hún heyrir oftar óreglulegu sögnina „lét“ og því læri heilinn að nota þá beygingarmynd í stað hinnar reglulegu. Auk þess eiga ennisblöðin eftir að þroskast allt fram á fullorðinsár en þau hafa meðal annars það hlutverk að hamla hegðun sem talin er óæskileg í umhverfi barnsins, hegðun sem oft og tíðum er stýrt af tilfinningum okkar. Heili barns býr því yfir ótrúlegum hæfileika til að aðlagast umhverfi sínu. Lengi vel var talið að heili fullorðinna væri lítt sveigjanlegur og missti hæfnina til að aðlagast umhverfinu með aldrinum. Sýnt hefur verið fram á að svo er ekki. Heilann má sveigja til fram eftir öllum aldri og ætti í raun að leggja jafn ríka áherslu á heilaleikfimi og líkamsæfingar. Rannsóknir á síðustu árum hafa sýnt fram á að breytingar verða á heila okkar við margvíslega hugarþjálfun. Sem dæmi þá virðist regluleg iðkun athafna sem reyna á hugann og ögra honum geta hægt á heilahrörnun þegar árin færast yfir. Að auki virðist hreyfing, sér í lagi loftháð þjálfun, hafa þau áhrif að mælanleg stækkun verður meðal annars á svokölluðum dreka, svæði sem hefur með minningar okkar að gera. Heilinn er sveigjanlegur og hefur hæfni til að aðlagast umhverfi sínu alla ævi. Því er mikilvægt að hlúa vel að honum.
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar