Innlent

Skallaði lögreglumann tvisvar í andlitið

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint
Tvítugur karlmaður var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í gær, fyrir að skalla lögreglumann tvisvar í andlitið fyrir utan skemmtistaðinn Gömlu símstöðina á Egilsstöðum í apríl í fyrra.

Maðurinn játaði sök. Í dómnum segir að brot gegn valdstjórninni, og að skalla í höfuð annars mans, í eðli sínu hættuleg. Haldi maðurinn skilorði þarf hann ekki að sitja dóm sinn af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×