"Ekki geðþóttaákvörðun ráðherra“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 16. október 2013 18:30
Heilbrigðisráðherra segir það ekki vera og að það eigi ekki að vera geðþóttaákvörðun ráðherra hversu mikla aðstoð fatlaðir einstaklingar fá frá ríki og sveitarfélögum. Hann segir það rangt að hann hafi brotið á mannréttindum sex ára fatlaðs drengs. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir það ekki rétt að hann hafi neitað foreldrum Ragnars Emils Hallgrímssonar, sex ára drengs með hrörnunarsjúkdóminn SMA, um fjárveitingu til að halda úti hjúkrunarfræðingi sem fylgir honum til skóla, en þetta fullyrti móðir drengsins í fréttum okkar á sunnudaginn var. Hún sagðist einnig ætla að stefna íslenska ríkinu vegna þessa. Samkvæmt upplýsingum frá móður Ragnars fá þau hjónin í kringum þrjár milljónir á mánuði frá ríkinu og sveitarfélaginu sem þau búa í til að annast drenginn sinn. Kristján segir að það verði að hafa í huga að fleiri börn eru í erfiðri stöðu líkt og Ragnar og hans fjölskylda. „Það er að mörgu að hyggja í þessum efnum og við mat á þeirri þjónustu sem þarf að veita langveikum börnum og fötluðum einstaklingum þá verður ráðherra hverju sinni að reiða sig á hið besta og faglegasta mat frá fagfólki hverju sinni,“ segir hann. Freyja Haraldsdóttir, varaþingmaður og framkvæmdastjóri NPA miðstöðvarinnar, sagði í fréttum okkar í fyrrakvöld Kristján Þór vera að brjóta á mannréttindum drengsins. Ráðherrann segir svo ekki vera. „Ráðuneytið á að móta stefnu í þessum efnum og síðan er það fagaðila að ákveða magnið í þjónstunni og það liggur fyrir að á fjárlögum ársins 2013 er eytt ákveðnum fjármunum til þessa verkefna og innan þess ramma verðum við að vinna á þessu ári,“ segir hann.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Sjá meira