Sjónvarps- og útvarpssendingar frá Úlfarsfelli Hrannar Pétursson skrifar 4. maí 2013 06:00 Þann 1. maí birtist grein í Fréttablaðinu eftir Þórdísi Hauksdóttur, þar sem hún fjallaði um uppsetningu fjarskiptamannvirkja á Úlfarsfelli. Í greininni var uppsetningin og tengdar framkvæmdir gagnrýndar harkalega, en með þessum línum vill Vodafone skýra tilurð framkvæmdanna og sögulegt samhengi þeirra.Alvarleg röskun á mikilvægri þjónustu yfirvofandi Um áratuga skeið var rekin á Rjúpnahæð í Kópavogi fjarskiptastöð, þaðan sem og útvarpssendingar voru til stórs hluta höfuðborgarsvæðisins. Stöðin var lögð niður fyrir rúmum fimm árum, vegna byggingar nýrra íbúðahverfa á svæðinu. Þá átti að hraða uppbyggingu á aðstöðu til útvarpssendinga á nýjum stað, en sú vinna tafðist úr hófi og útvarpssendingar lentu á hrakhólum. Fyrir vikið hafa gæði útvarpssendinga minnkað og þjónustan við borgarbúa versnað, eins og vaxandi umkvartanir almennings eru til vitnis um. Vegna byggðaþróunar munu útvarps- og sjónvarpssendingar frá Vatnsendahæð einnig leggjast af innan skamms og án uppbyggingar á nýjum útsendingarstað blasti því við alvarleg röskun á fjarskiptaþjónustu sem bæði er nauðsynleg út frá öryggissjónarmiðum og kröfu almennings um gæði útvarps- og sjónvarpsþjónustu. Í því samhengi hófst fyrir nokkrum árum kortlagning á mögulegum sendastöðum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða þeirrar vinnu var sú, að Úlfarsfell væri langheppilegasti staðurinn til útvarpssendinga. Þaðan gætu fjarskiptamerki borist víða, án þess þó að umrædd mannvirki væru nærri byggð. Sótt var um leyfi fyrir nauðsynlegum framkvæmdum og eftir að leyfi fékkst, um einu og hálfu ári síðar, var hafist handa við lagningu jarðstrengs og byggingu tækjahúss. Þá voru settir upp tveir tréstaurar fyrir loftnet útvarpssendanna. Rík áhersla var lögð á lágmarksrask á umhverfinu við framkvæmdirnar. Sannarlega sá þeirra merki á framkvæmdatímanum en nú, u.þ.b. ári síðar, eru ummerkin lítil sem engin. Farið var í einu og öllu eftir settum skilmálum en eftir að framkvæmdum lauk kom í ljós, að Reykjavíkurborg var óheimilt að veita byggingarleyfið sem síðar var afturkallað. Málinu var í framhaldinu vísað til kærunefndar Umhverfis og auðlindamála, sem hefur það til úrvinnslu þegar þessi orð eru rituð.Úlfarsfell geti áfram verið útivistarparadís Uppbygging fjarskiptaþjónustu er mikilvæg samfélaginu öllu. Miklar kröfur eru gerðar til þjónustuaðila og til að verða við þeim er óhjákvæmilegt að setja upp fjarskiptabúnað af ýmsu tagi, oft á óbyggðum svæðum. Þannig hefur tekist að bæta þjónustu við almenning, auka öryggi ferðafólks og mæta vaxandi eftirspurn. Í öllum framkvæmdum leggjum við okkur fram um að umgangast náttúruna af virðingu og hlusta fordómalaust á skoðanir þeirra sem gagnrýna einstakar framkvæmdir á okkar vegum. Við teljum okkur ekki vera óvini náttúrunnar og trúum því einlæglega, að fjarskiptarekstur á Úlfarsfelli hafi hvorki áhrif á lífræna heild fjallsins né hindri borgarbúa í að sækja þangað til útivistar.Vinnum saman Starfsmenn Vodafone er reiðubúnir til að vinna með öllum sem hagsmuna eiga að gæta að viðunandi lausn á málinu. Það er okkar trú að eitt þurfi ekki að útiloka annað og með góðri samvinnu geti Úlfarsfell í senn orðið varanlegur útsendingarstaður og útivistarparadís. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar