Gefum heilanum gaum! Heilahreysti í hárri elli Brynhildur Jónsdóttir skrifar 22. mars 2013 06:00 Að meðaltali minnkar rúmmál heila með vaxandi aldri og vitrænni færni hnignar. Líklegt þykir þó að áhrif aldurs á þessa færni sé ofmetin í rannsóknum. Flest okkar þekkja einhvern sem náð hefur háum aldri án þess að andlegt atgervi hafi látið undan síga að neinu marki og því virðist slík hnignun engan veginn vera óhjákvæmileg. En hvað er það þá sem skilur á milli þeirra sem ná háum aldri án þess að minnið, hugsanahraðinn eða aðrir þættir láti undan síga, og hinna sem finna til þess að vitrænt starf þeirra sé á hægu undanhaldi strax upp úr miðjum aldri? Rannsóknir benda til að umhverfisþættir hafi mun meiri áhrif en arfgerð á ævilengd og heilsu á efri árum. Flestir sem komnir eru af barnsaldri vita að óheilbrigður lífstíll eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Það vita þó ef til vill færri að margir áhættuþættir æðasjúkdóma eru einnig áhættuþættir fyrir síðari tíma hnignun í vitsmunalegu starfi, Alzheimerssjúkdóm og blóðrásarheilabilun. Þessir sameiginlegu áhættuþættir fyrir truflanir í starfsemi heila og æðakerfis eru til dæmis reykingar, langvarandi sykursýki, háþrýstingur og ofþyngd. Þó að þarna sé um að ræða marga áhættuþætti þarf í mörgum tilfellum bara eina aðgerð til þess að halda þeim öllum niðri. Þessi aðgerð er regluleg hreyfing. Hreyfingin hefur ekki bara góð áhrif á starfsemi heila með því að hjálpa til við að halda áðurnefndum sjúkdómum í skefjum heldur benda niðurstöður rannsókna eindregið til að líkamsþjálfun styrki nýmyndun og lífshorfur taugafruma (það var ekki hárnákvæmt sem okkur var sagt fyrir 20 árum síðan, að taugafrumur endurnýjuðu sig ekki), styrki nýmyndun æða, örvi boðskipti á milli taugafruma og hafi jákvæð áhrif á námsgetu og minni. Hreyfing er trúlega einfaldasta leiðin til þess að vernda heilann fyrir áhrifum aldurs og er alveg sérlega mikilvæg forvörn fyrir þá sem eru á miðjum aldri. Forvarnir fyrir heilabilun hafa trúlega aldrei verið mikilvægari en einmitt núna, því um leið og meðalaldur fer hækkandi, eykst tíðni heilabilunar. Spár gera ráð fyrir að fjöldi fólks með Alzheimerssjúkdóm muni þrefaldast frá árinu 2010 til ársins 2050 og því er mikilvægi forvarna sem miða að því að minnka tíðni sjúkdómsins varla ofmetið. Hreyfingin sem þú iðkar í dag vinnur því í haginn fyrir framtíðina, bæði í persónulegu og samfélagslegu tilliti. Frekari fróðleik um áhrif lífstíls á heila má finna á vefnum heilahreysti.about-brains.com. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Friðum Eyjafjörð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson Skoðun Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu Hjörvar Ingi Haraldsson Skoðun Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen Skoðun Mun gervigreind skapa stafræna stéttaskiptingu á Íslandi? Björgmundur Guðmundsson Skoðun Langar þig að vera sjóklár? Steinunn Ása Þorvaldsdóttir,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna Clara Ganslandt skrifar Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar Skoðun Hvaða orka? Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar Skoðun Friðum Eyjafjörð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Eflum samstöðuna á kvennaári – Stöndum vörð um mannréttindi Kristín Ástgeirsdóttir skrifar Skoðun Langar þig að vera sjóklár? Steinunn Ása Þorvaldsdóttir,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Við fögnum en gleymum ekki Sandra B. Franks skrifar Skoðun Mun gervigreind skapa stafræna stéttaskiptingu á Íslandi? Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“ Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Aukin neysla á ávöxtum og grænmeti í kjölfar nýrra ráðlegginga um mataræði Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Hólmfríður Þorgeirsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti og ábyrg fjármálastjórn- skynsamleg nálgun á bætt kjör bótaþega almannatrygginga Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Stjórnarandstaða í grímulausri sérhagsmunagæzlu Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Að breyta leiknum Hera Grímsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Framtíðarsýn er ekki afsökun fyrir óraunhæfa stefnu Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Sjófólksdagurinn Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Harmakvein kórs útgerðarmanna Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Hvað liggur í þessum ólgusjó? Ástþór Ólafsson skrifar Skoðun Bull og rugl frá Bugl Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Kosningaloforð? Sjónarhorn leikskólakennara Anna Lydía Helgadóttir skrifar Sjá meira
Að meðaltali minnkar rúmmál heila með vaxandi aldri og vitrænni færni hnignar. Líklegt þykir þó að áhrif aldurs á þessa færni sé ofmetin í rannsóknum. Flest okkar þekkja einhvern sem náð hefur háum aldri án þess að andlegt atgervi hafi látið undan síga að neinu marki og því virðist slík hnignun engan veginn vera óhjákvæmileg. En hvað er það þá sem skilur á milli þeirra sem ná háum aldri án þess að minnið, hugsanahraðinn eða aðrir þættir láti undan síga, og hinna sem finna til þess að vitrænt starf þeirra sé á hægu undanhaldi strax upp úr miðjum aldri? Rannsóknir benda til að umhverfisþættir hafi mun meiri áhrif en arfgerð á ævilengd og heilsu á efri árum. Flestir sem komnir eru af barnsaldri vita að óheilbrigður lífstíll eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Það vita þó ef til vill færri að margir áhættuþættir æðasjúkdóma eru einnig áhættuþættir fyrir síðari tíma hnignun í vitsmunalegu starfi, Alzheimerssjúkdóm og blóðrásarheilabilun. Þessir sameiginlegu áhættuþættir fyrir truflanir í starfsemi heila og æðakerfis eru til dæmis reykingar, langvarandi sykursýki, háþrýstingur og ofþyngd. Þó að þarna sé um að ræða marga áhættuþætti þarf í mörgum tilfellum bara eina aðgerð til þess að halda þeim öllum niðri. Þessi aðgerð er regluleg hreyfing. Hreyfingin hefur ekki bara góð áhrif á starfsemi heila með því að hjálpa til við að halda áðurnefndum sjúkdómum í skefjum heldur benda niðurstöður rannsókna eindregið til að líkamsþjálfun styrki nýmyndun og lífshorfur taugafruma (það var ekki hárnákvæmt sem okkur var sagt fyrir 20 árum síðan, að taugafrumur endurnýjuðu sig ekki), styrki nýmyndun æða, örvi boðskipti á milli taugafruma og hafi jákvæð áhrif á námsgetu og minni. Hreyfing er trúlega einfaldasta leiðin til þess að vernda heilann fyrir áhrifum aldurs og er alveg sérlega mikilvæg forvörn fyrir þá sem eru á miðjum aldri. Forvarnir fyrir heilabilun hafa trúlega aldrei verið mikilvægari en einmitt núna, því um leið og meðalaldur fer hækkandi, eykst tíðni heilabilunar. Spár gera ráð fyrir að fjöldi fólks með Alzheimerssjúkdóm muni þrefaldast frá árinu 2010 til ársins 2050 og því er mikilvægi forvarna sem miða að því að minnka tíðni sjúkdómsins varla ofmetið. Hreyfingin sem þú iðkar í dag vinnur því í haginn fyrir framtíðina, bæði í persónulegu og samfélagslegu tilliti. Frekari fróðleik um áhrif lífstíls á heila má finna á vefnum heilahreysti.about-brains.com.
Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar
Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar
Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aukin neysla á ávöxtum og grænmeti í kjölfar nýrra ráðlegginga um mataræði Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Hólmfríður Þorgeirsdóttir skrifar
Skoðun Réttlæti og ábyrg fjármálastjórn- skynsamleg nálgun á bætt kjör bótaþega almannatrygginga Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun