Borg barnafjölskyldna Oddný Sturludóttir skrifar 22. mars 2013 06:00 Fjölskyldur með ung börn hafa ekki farið varhluta af erfiðu efnahagsástandi síðastliðin ár. Barnafjölskyldur eru með námslán á bakinu, eru að koma sér upp þaki yfir höfuðið og að hasla sér völl á vinnumarkaði. Þetta er fólkið sem á börn á leikskólaaldri með öllu því himneska vafstri sem smábörnum fylgir. Það er mikilvægt að standa vel við bakið á smábarnafjölskyldum og það hefur Reykjavík svo sannarlega gert síðastliðin ár. Ég vil sérstaklega beina sjónum að leikskólagjöldum, sem hjá allflestum fjölskyldum á landinu taka í budduna. Þar eru lægstu gjöldin greidd í Reykjavík. Af þessu má sjá að Reykjavík hefur vinninginn, sérstaklega gagnvart fjölskyldum með tvö börn eða fleiri á leikskólaaldri. Munurinn er allt frá því að vera 31% og upp í 64%.Gott að vera námsmaður En skoðum þá hvernig dæmið lítur út hjá námsmönnum, öryrkjum og einstæðum foreldrum. Þess má geta að starfsfólk leikskóla fær einnig þennan sama afslátt af leikskólagjöldum og er Reykjavík eitt örfárra sveitarfélaga sem býður starfsfólki leikskóla þau hlunnindi.Menntun og velferð Munurinn er skýr. Í Reykjavík hefur verið forgangsraðað í þágu barnafjölskyldna þrátt fyrir erfiða stöðu borgarsjóðs og fyrirtækja í hennar ábyrgð. Við höfum hagrætt í stjórnkerfi og farið í skipulagsbreytingar með sameiningu sviða og í yfirstjórn stofnana. Við stöndum vörð um velferð og skólastarf, höfum fjölgað leikskólaplássum verulega og leggjum mikinn metnað í okkar kraftmikla skóla- og frístundastarf. Fagmennska og metnaður kennara og starfsfólks, sem og áhrif foreldra, skipta þar höfuðmáli. Árangurinn sýnir sig í betri árangri á flestum sviðum skólastarfs, betri líðan barna og unglinga, meiri ánægju foreldra og minna einelti.Leikskólinn er menntastofnun Leikskólinn er menntastofnun, ekki þjónustustofnun. Í umræðu um leikskólann er oft einblínt um of á þjónustuhlutverk hans en leikskóli er skóli fyrir börn á viðkvæmu og mikilvægu skeiði. Sú staðreynd að leikskólinn á Íslandi er almennur og í boði fyrir alla án aðgreiningar er gríðarmikilvæg. Með því stuðlum við að jöfnuði og tryggjum að öll börn geti dafnað í þroskavænlegu og skapandi umhverfi. Þetta mætti kalla félagslegt hlutverk leikskólans, sem er hans mikilvægasta hlutverk og mætti ræða mun oftar en þjónustuhlutverkið. Stærsta velferðarmálið er góð almenn menntun fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri, uppbyggilegt frístundastarf fyrir börn og unglinga og hóflegt gjald fyrir leikskólanám og aðra þætti skóla- og frístundamála í Reykjavík. Þannig borg viljum við búa í, þannig borg er Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar