Leiða ferðamenn um Reykjavík á Segway Sara McMahon skrifar 3. júní 2013 11:30 Hjónin Linda Björg Sigurjónsdóttir og Davíð Þór Þorvaldsson reka saman ferðaþjónustufyrirtækið Sway Reykjavík. Þau bjóða upp á ferðir um höfuðborgina á Segway-farartækjum. Fréttablaðið/Anton „
Jú, viðbrögð fólks eru oft skrítin. Það kallar, bendir og tekur myndir. Mér þykir Íslendingar yfirleitt frekar rólegt fólk en svo er ekki þegar þeir sjá okkur,“ segir Davíð Þór Þorvaldsson, lögfræðingur og einn af stofnendum ferðaþjónustufyrirtækisins Sway Reykjavík. Fyrirtækið býður upp á leiðsögn um höfuðborgina á Segway-farartækjum og er hið fyrsta sinnar tegundar í Reykjavík. Davíð Þór og eiginkona hans, Linda Björg Sigurjónsdóttir, reka Sway Reykjavík ásamt foreldrum hennar, Sigurlaugu Sigurpálsdóttur og Sigurjóni P. Stefánssyni, og er fyrirtækið því sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Davíð viðurkennir að það hafi kostað töluverða fjármuni að koma fyrirtækinu á koppinn, enda eru Segway-tækin dýr í kaupum. „Við erum með átta stykki, eitt fyrir leiðsögumann og sjö fyrir viðskiptavini. Leiðsögnin fer yfirleitt fram á ensku en við stefnum á að bjóða upp á leiðsögn á öðrum tungumálum bráðlega.“ Hjónin tóku á móti fyrstu viðskiptavinum sínum í mars og leiðir Linda nú nokkra hópa á dag um hjólastíga borgarinnar. Spurður út í hugmyndina að fyrirtækinu segist Davíð hafa farið í svipaða ferð um Kaupmannahöfn í fyrrasumar. „Mér fannst þetta skemmtileg nýjung og hugmyndin að Sway Reykjavík varð til í kjölfar ferðarinnar.“ Leiðin sem farin er liggur meðal annars um Gróttu, Ægisíðu, Öskjuhlíð og Tjörnina og tekur hver ferð um tvær klukkustundir. Fjórtán ára aldurstakmark er í ferðirnar en Davíð segir tækin engu hættulegri en venjuleg reiðhjól. „Ef eitthvað fer úrskeiðis stígur maður bara af tækinu,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“