27 marka sigur Kiel á áströlsku liði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. ágúst 2012 17:58 Aron Pálmarsson í leik með Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Kiel vann í dag stórsigur á ástralska liðinu Sydney University í heimsmeistarakeppni félagsliða sem nú fer fram í Katar. Lokatölur voru 40-13, Þýskalands- og Evrópumeisturunum í vil. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Kiel og var næstmarkahæstur. Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kiel í leiknum en liðið er nú með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum í riðlakeppninni. Kiel dugir jafntefli gegn Asíumeisturum Mudhar frá Sádí-Arabíu á morgun til að vinna riðilinn. Eins og tölurnar bera með sér var sigur Kiel afar öruggur en annað var upp á teningnum í gær, þegar að Kiel vann nauman sigur á heimaliðinu Al Sadd, 29-26, eftir að síðarnefnda liðið hafði sjö marka forystu í hálfleik, 16-9. Það skal þó tekið fram að Al Sadd er nánast eingöngu skipað leikmönnum franska liðsins Montpellier á þessu móti. Al Sadd greiddi leikmönnunum háar fjárhæðir til að spila með liðinu á þessu móti sem lýkur nú um helgina. Umræddir leikmenn eru þeir Nikola Karabatic, William Accambray, Issam Tej, Wissem Hmam, Cristian Malmagro, Primoz Prost og Dragan Gajic. Samanlagt skoruðu þeir öll mörk Al Sadd gegn Kiel í gær nema fimm. Fyrr í dag vann Atletico Madrid sigur á Matodista Sao Bernardo frá Brasilíu í hinum riðlinum, 34-27. Spánverjarnir eru sigurstranglegastir í þeim riðli og stefnir því að Evrópuliðin tvö mætist í úrslitaleik keppninnar, rétt eins og í Meistaradeild Evrópu í vor. Þá hafði Kiel betur.
Handbolti Mest lesið Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ Fótbolti Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Viktor tekur við Haukum Körfubolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira