Kærir myndbandið og fordæmir umfjöllun 31. október 2012 16:19
Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, fordæmir umfjöllun fjölmiðla um myndband sem Bóas Ragnar Bóasson setti á netið þar sem fram koma samskipti þeirra tveggja þar sem þeir ræða um það hvernig skuli brjóta lög um gjaldeyrishöft. Hann hefur einnig kært myndbandið til lögreglu en hann segir samtalið vera tilklippt og framsetning villandi. Svo segir hann orðrétt: „Undirritaður hefur sent kæru til lögreglu þar sem óskað er eftir rannsókn á myndbandagerð, dreifingu þess og birtingu, þ.m.t. birtingu fjölmiðla, þar sem vegið er að æru og trúverðugleika undirritaðs sem og þeirra samtaka sem hann hefur starfað fyrir. Kann þetta að brjóta í bága við almenn hegningalög. Hefur forsvarsmönnum fjölmiðla sömuleiðis verið sent bréf af sama tilefni . Fordæmir undirritaður óábyrgan fréttaflutning og mun skoða réttastöðu sína gagnvart fjölmiðlum sérstaklega." Þá segir Guðmundur einnig að hann hafi tapað a´viðskiptum við þann sem setti myndbandið inn á vefinn, og hann kallar óheillamann. Vísir ræddi við umræddan mann í dag, Bóas Ragnar, þar sem hann sagðist hafa sett myndbandið á netið þar sem honum hafi verið ógnað af handrukkurum. Þar var Bóas einnig spurður hvort Guðmundur hefði tapað fé í viðskiptum sínum við hann, því neitaði Bóas. Guðmundur heldur öðru fram. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu Guðmundar í heild sinni: Í tilefni af fréttaflutningi sl. sólarhring af „meintu misferli" undirritaðs með vísan til ónafngreinds myndbands þar sem undirritaður er settur í aðalhlutverk glæpamanns sem framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, með afbökun, tilklipptum samtölum, textainnskotum og villandi framsetningu, vill undirritaður gefa eftirfarandi yfirlýsingu. Undirritaður hefur sent kæru til lögreglu þar sem óskað er eftir rannsókn á myndbandagerð, dreifingu þess og birtingu, þ.m.t. birtingu fjölmiðla, þar sem vegið er að æru og trúverðugleika undirritaðs sem og þeirra samtaka sem hann hefur starfað fyrir. Kann þetta að brjóta í bága við almenn hegningalög. Hefur forsvarsmönnum fjölmiðla sömuleiðis verið sent bréf af sama tilefni . Fordæmir undirritaður óábyrgan fréttaflutning og mun skoða réttastöðu sína gagnvart fjölmiðlum sérstaklega. Undirritaður hefur ekki á nokkurn hátt gerst brotlegur gagnvart Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem undirritaður harmar að séu dregin inn í fréttaflutning þennan. Undirritaður telur líkur benda til að hinn ónefndi framleiðandi myndbands sé óheilla maður sem hefur verið kærður til lögreglu vegna umfangsmikilla svika í viðskiptum við aðila á Íslandi og erlendis. Er undirritaður einn þeirra sem tapaði fjármunum vegna lána til fyrirtækja honum tengdum. Undirritaður hefur komið þeim skilaboðum til embættis lögreglu sem fer með rannsókn málsins að hann liðsinni með hverjum þeim hætti sem hann á kost á. Reykjavík, 31. október 2012. Guðmundur Örn Jóhannsson
Tengdar fréttir Formaður Landsbjargar: Erum að lýsa upp í öll horn "Við erum bara að lýsa upp í öll horn,“ segir Hörður Már Harðarson, formaður Landsbjargar, en starfsfólk er búið að fara yfir bókhald félagsins og kanna hvort þar sé að finna eitthvað óeðlilegt, eftir að myndbandi um framkvæmdastjóra félagsins var birt á netinu. 31. október 2012 10:37 Segir myndband tilbúning og hótar málaferlum út af hlekk "Umrætt myndband er tilbúningur einn af ónefndum aðila sem gert er í þeim tilgangi að skaða æru og trúverðugleika undirritaðs og eftir atvikum þeim samtökum sem undirritaður hefur starfað hjá sem framkvæmdastjóri. 31. október 2012 14:43 Segir Bóas hafa verið kærðan fyrir stórfelld fjársvik Sigurður K. Kolbeinsson, eða Siggi eins og hann er kallaður í umdeildu myndbandi á Youtube, segir í yfirlýsingu sem hann sendi á fréttastofu að Bóas Ragnar Bóasson athafnamaður, sé ábyrgur fyrir myndbandinu þar sem fram koma alvarlega ásakanir á hendur framkvæmdastjóra Landsbjargar. 31. október 2012 11:36 Bóas Ragnar: Segist hafa búið til myndbandið af ótta við handrukkara "Ég er búinn að sæta hótunum vegna handrukkara,“ segir Bóas Ragnar Bóasson, athafnamaður, sem birti myndband á vef Youtube um helgina en á myndbandinu má heyra hljóðupptöku af samtali á milli Guðmundar Arnar Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Landsbjargar, og Bóasar, þar sem þeir skipuleggja brot á gjaldeyrishöftum. 31. október 2012 15:34 Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira
Formaður Landsbjargar: Erum að lýsa upp í öll horn "Við erum bara að lýsa upp í öll horn,“ segir Hörður Már Harðarson, formaður Landsbjargar, en starfsfólk er búið að fara yfir bókhald félagsins og kanna hvort þar sé að finna eitthvað óeðlilegt, eftir að myndbandi um framkvæmdastjóra félagsins var birt á netinu. 31. október 2012 10:37
Segir myndband tilbúning og hótar málaferlum út af hlekk "Umrætt myndband er tilbúningur einn af ónefndum aðila sem gert er í þeim tilgangi að skaða æru og trúverðugleika undirritaðs og eftir atvikum þeim samtökum sem undirritaður hefur starfað hjá sem framkvæmdastjóri. 31. október 2012 14:43
Segir Bóas hafa verið kærðan fyrir stórfelld fjársvik Sigurður K. Kolbeinsson, eða Siggi eins og hann er kallaður í umdeildu myndbandi á Youtube, segir í yfirlýsingu sem hann sendi á fréttastofu að Bóas Ragnar Bóasson athafnamaður, sé ábyrgur fyrir myndbandinu þar sem fram koma alvarlega ásakanir á hendur framkvæmdastjóra Landsbjargar. 31. október 2012 11:36
Bóas Ragnar: Segist hafa búið til myndbandið af ótta við handrukkara "Ég er búinn að sæta hótunum vegna handrukkara,“ segir Bóas Ragnar Bóasson, athafnamaður, sem birti myndband á vef Youtube um helgina en á myndbandinu má heyra hljóðupptöku af samtali á milli Guðmundar Arnar Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Landsbjargar, og Bóasar, þar sem þeir skipuleggja brot á gjaldeyrishöftum. 31. október 2012 15:34