Landsbyggðin og Landspítalinn Jakob Ólafsson flugstjóri skrifar 2. febrúar 2012 06:00 Í skýrslu nefndar um uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbraut frá apríl 2004 er í 10. kafla fjallað um samgöngur við LSH og þar segir m.a.: „Mikilvæg forsenda fyrir staðarvali við Hringbraut var að sýnt þótti, að þar væri hægt að tryggja gott aðgengi ökutækja og sjúkraflugs“ og síðan segir: „Hlutverk LSH er m.a. að vera þungamiðja í íslensku heilbrigðiskerfi, en þangað verður leitað ef fjölmenn slys verða jafnframt því sem einstaklingar með smærri vandamál fá þar þjónustu.“ Þá er í skýrslunni fjallað um samgöngumiðstöð sem þjóni flugi, langferðabílum og strætisvögnum og þar með hagsmunum Landspítalans til að uppfylla skyldur sínar við landsbyggðina. Síðan verða blikur á lofti, ný stjórnvöld taka við og skipt er út nefnd um Landspítalaverkefnið. Áherslur þessara nýju stjórnarherra eru að að losa sig við Reykjavíkurflugvöll með öllum ráðum og láta sem öryggi og hagsmunir landsbyggðarinnar séu þeim óviðkomandi. Nú eru áherslurnar á gangandi og hjólandi fólk að væntanlegum Landspítala og mismuna þannig þeim sem lengra þurfa að sækja þjónustu á spítalann, eða með sömu rökum og beitt var við staðsetningu og byggingu Háskólans í Reykjavík, en nú í vetrarfærðinni er skólastarfið stendur sem hæst, má telja á fingrum annarrar handar fólk sem gengur eða hjólar í skólann og umferðarþungi bíla á svæðinu hefur hundruðfaldast frá því sem áður var. Á málþingi um flugmál sem haldinn var 19. janúar sl. kristallaðist þetta landsbyggðarfálæti í orðum nokkurra ræðumanna, m.a. skipulagsfræðings og Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa/læknis, þar sem m.a. kom fram í orðum borgarfulltrúans/læknisins að engu skipti um staðsetningu og vegalengd flugvallarins frá Landspítalanum því þegar fagfólk væri komið á slysstað úti á örkinni þá skipti engu máli tími eða flutningsvegalengd sjúklings af slysstað á spítala. Þetta voru ný sannindi fyrir okkur sem störfum að björgun og sjúkraflutningum, þar sem fyrsti klukkutíminn er talinn skipta sköpum um lífslíkur alvarlega veikra eða slasaðra sjúklinga (svo kallaður „Golden Hour“) og með hverri mínútu þar eftir minnka lífslíkurnar verulega þar sem sjúklingar, m.a. ofkældir, í hjartaáfalli, með heilablóðfall, eða með innvortis blæðingar, sem ekki er möguleiki að greina í þröngu umhverfi sjúkraflugvéla/þyrlna, þurfa að komast með hraði á sjúkrahús til meðhöndlunar ef ekki á illa að fara. Ef þetta er skoðun borgarfulltrúans/læknisins þá væntanlega kemur hann þessum boðum til sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu um að ekki sé þörf á forgangsakstri sjúkrabíla af slysstað á spítala á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki liggi neitt á, þeir geti allt eins beðið við stöðvunarskyldumerki og á umferðarljósum eins og aðrir og séu ekki að stofna sér og öðrum í hættu með slíkum forgangsakstri. Ekki hefur farið hátt um álit sem beðið var um og skilað af þyrluflugstjórum Landhelgisgæslunnar um öryggismál og ónæði af þyrlupalli á þaki tilvonandi Landspítala við Hringbraut eins og stefnt er að í nýju deiliskipulagi svæðisins. Þyrlupallar á þaki sjúkrahúsbygginga, eins og núverandi nefnd um sjúkrahúsbygginguna leggur til, eru neyðarbrauð þar sem vanalega er um eldri sjúkrahúsbyggingar í þéttbyggðum svæðum að ræða sem taka eiga að sér nýtt hlutverk þar sem ekki er pláss fyrir þyrlupall á öruggu svæði í námunda við spítalann. Ef þyrlupallar eru settir á nýjar spítalabyggingar er gert ráð fyrir rúmum öryggissvæðum til nauðlendinga við aðflug og brottflug þyrlna að pallinum því ef bilun verður í gírkössum eða stélskrúfu þyrlu við aðflug eða brottflug að þyrlupallinum hefur þyrluáhöfnin afar lítið svigrúm til að beina þyrlunni að heppilegum lendingarstað, aðeins það rými sem er nánast beint fyrir neðan þyrluna er í boði til nauðlendingar og því gæti skapast almannahætta við brotlendingu þyrlu á sjúkrahússvæðinu, í nálægri byggð eða á umferðargötu. Miðað við framtíðarskipulag Landspítalasvæðisins er gert ráð fyrir þéttri byggð og umferðaræðum í nágrenni spítalans og því slík öryggissvæði ekki í boði. Þá hafa engar mælingar verið gerðar á áhrifum bygginga á vind með tilliti til ókyrrðar og vindsveipa á þyrlupalli sjúkrahússins eða hávaðamælingar á nálæga byggð svo sem í Þingholtum, Skólavörðuholti, Norðurmýri og víðar en sjúkra- og björgunarflug á þyrlum fer fram hvort sem er að nóttu sem degi og því má búast við umtalsverðri röskun á hljóðvist á þessu svæði til framtíðar ef af þessum áformum verður. Því var það niðurstaða álits þyrluflugstjóranna að útbúið yrði sameiginlegt athafnasvæði þyrlna og sjúkraflugvéla innan flugvallarsvæðisins sem næst sjúkrahúsinu þar sem öryggi sjón- og blindaðflugs að flugbrautum Reykjavíkurflugvallar nyti við. Þá er rétt að hnykkja á því vegna þráhyggju hörðustu flugvallarandstæðinga að þyrlur geta ekki leyst sjúkraflugvélar af hólmi þar sem þær flugvélar sem notaðar eru í sjúkraflugi hér á landi fljúga meira en helmingi hraðar og allt að þrisvar sinnum hærra en þyrlurnar og því fyrsti kostur þegar kemur að sjúkra- og björgunarflugi hér á landi, fyrir utan að vera miklu ódýrari í rekstri en þyrlurnar. Kostir þyrlnanna eru að þær gagnast best til sjúkra- og björgunarflugs í óbyggðum og hinum dreifðari byggðum landsins og í þjónustu við sæfarendur í kringum landið. Ef ekki er hægt að tryggja gott aðgengi landsbyggðarfólks með sjúkraflugi að tilvonandi Landspítala, eins og ein af mikilvægum forsendum staðarvals spítalans við Hringbraut var í upphafi, er nauðsynlegt að hugsa dæmið upp á nýtt og finna honum og flugvellinum nýjan stað svo hann standi undir nafni sem Landspítali – spítali allra landsmanna og þungamiðja í íslensku heilbrigðiskerfi. Reykjavíkurborg gæti þannig fengið aftur Borgarspítalann í Fossvogi og rekið á eigin reikning. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Um ópið sem heimurinn ekki heyrir Reham Khaled Skoðun Umbóta á námi fanga enn beðið Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Talaðu núna, talaðu! Bolli Pétur Bollason Skoðun Seðlabankastjóri rannsakar sjálfan sig Einar Steingrímsson Skoðun Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun 30 by 30 - Gefum lífi á jörð smá séns Rósa Líf Darradóttir Skoðun Stóra spurningin sem fjárlögin svara ekki Sandra B. Franks Skoðun Fæðingarhríðir fjórðu iðnbyltingarinnar: Til fjármálafyrirtækja Klara Nótt Egilson Skoðun Skuggaráðherra ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Siglt gegn þjóðarmorði Cyma Farah,Sólveig Ásta Sigurðardóttir skrifar Skoðun Um ópið sem heimurinn ekki heyrir Reham Khaled skrifar Skoðun 30 by 30 - Gefum lífi á jörð smá séns Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Hærri greiðslur í fæðingarorlofi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin sem fjárlögin svara ekki Sandra B. Franks skrifar Skoðun Námsmat og Matsferill – Tækifæri til umbóta í skólastarfi Sigurbjörg Róbertsdóttir skrifar Skoðun Tími til aðgerða - loftslags- og umhverfismál sett á dagskrá Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Setjum á okkur súrefnisgrímuna áður en við björgum heiminum. Nú þarf hinn þögli meirihluti að láta í sér heyra Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Sterkt skólasamfélag á Akureyri, sameiginleg ábyrgð og framtíðarsýn Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Fæðingarhríðir fjórðu iðnbyltingarinnar: Til fjármálafyrirtækja Klara Nótt Egilson skrifar Skoðun „AMOC straumurinn", enn ein heimsendaspáin... Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Talaðu núna, talaðu! Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Seðlabankastjóri rannsakar sjálfan sig Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Skuggaráðherra ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Óttinn selur Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – horft til framtíðar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Umbóta á námi fanga enn beðið Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þegar fjórða valdið sefur – og gamla tuggan lifir Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Raddir, sýnir og aðrar óhefðbundnar skynjanir Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Er ég eins og ég er? - Svar við pistli heilbrigðisráðherra Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eftir höfðinu dansa limirnir Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Sýklasótt – tími og þekking skiptir máli Alma Möller skrifar Skoðun Frá upplausn til uppbyggingar Þór Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir sveitanna í vasa heildsala Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Verið að vinna sér í haginn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk Alma D. Möller skrifar Skoðun Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir skrifar Sjá meira
Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun
Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Námsmat og Matsferill – Tækifæri til umbóta í skólastarfi Sigurbjörg Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Tími til aðgerða - loftslags- og umhverfismál sett á dagskrá Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar
Skoðun Setjum á okkur súrefnisgrímuna áður en við björgum heiminum. Nú þarf hinn þögli meirihluti að láta í sér heyra Steindór Þórarinsson skrifar
Skoðun Sterkt skólasamfélag á Akureyri, sameiginleg ábyrgð og framtíðarsýn Heimir Örn Árnason skrifar
Skoðun Fæðingarhríðir fjórðu iðnbyltingarinnar: Til fjármálafyrirtækja Klara Nótt Egilson skrifar
Skoðun Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir skrifar
Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun
Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun