Viðskipti innlent

Arion banki býður Pennann til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í Pennanum á Íslandi ehf. sem er í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.

Í tilkynningu segir að Penninn sé leiðandi fyrirtæki á sviði skrifstofuhúsgagna, skrifstofuvara, gjafavöru og afþreyingar s.s. bóka, tímarita, myndbanda og geisladiska bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Verslanir Pennans eru Eymundsson, Penninn, Grifill og Islandia. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns og er velta félagsins um 5 milljarðar kr.

Allt hlutafé Pennans á Íslandi ehf. er boðið til sölu í einu lagi. Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum, sem að mati seljanda geta sýnt fram á til þess bæran fjárhagslegan styrk eða aðgang að a.m.k. 300 milljónum króna í auðseljanlegum eignum.

Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að viðkomandi fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu eru beðnir um að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. Skulu þeir leggja fram trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhendar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×