Skoðun

22. júlí kynslóðin í stjórnmálum

Kristrún Heimisdóttir skrifar
Því miður heyrðu íslenskir fjölmiðlar illa á dögunum þegar ungliðahreyfingar íslenskra stjórnmálaflokka gáfu út sameiginlega yfirlýsingu um mikilvægi stjórnmálastarfs þrátt fyrir „ástandið". Var þetta þó stórfrétt vegna stílbrotsins gegn fordæmi elstu forystumanna sem magna alla finnanlega ófriðarelda. Yfirlýsingin var gefin í anda nýju 22. júlí kynslóðarinnar sem Jens Stoltenberg talaði sérstaklega til í Útey sl. sunnudag og sagði ungliða allra stjórnmálaflokka í Noregi tilheyra því allar hefðu hreyfingarnir stækkað á liðnu ári vegna ungmenna sem byðu Breivik byrginn. Á ungliðana væri betur hlustað en fyrr.

Ungir jafnaðarmenn og íslensk nasjonsbyggingÍ Útey 22. júlí 2011 voru „uppbyggjarar" framtíðarinnar að móta nýjar áherslur innan hefðarinnar sem norski Verkamannaflokkurinn hefur skapað – um félagslegt réttlæti, lýðræði og samábyrgð í raun. Þau höfðu sett kærleiksríka samlögun kynþátta og trúarbragða innan norsks samfélags á oddinn.

Ungir jafnaðarmenn á Íslandi hafa á eftirtektarverðan hátt borið þennan anda til Íslands. Þau gátu öll eins sjálf verið í Útey. Undanfarin ár hafa þau lagt sig enn meira eftir að vinna með alþjóðahreyfingu jafnaðarmanna og meðal hinna 67 föllnu voru félagar. Minningarstund í Vatnsmýri á sunnudaginn skipulagði UJ og hana sóttu einnig ungliðar íslenskra flokka sem flokksforysta jafnaðarmanna á vart talsamband við í „ástandinu". Í íslenskum stjórnmálum var gefið út opið ofbeldisleyfi sem hefur á fjórum árum á endanum hitt alla flokka og almenning fyrir. Enginn af eldri kynslóð axlar ábyrgð á því að nema úr gildi þetta ofbeldisleyfi af ótta við óvinsældir. Þannig bera allir ábyrgð á hringrás sem veikir samfélagið í heild. Vilji íslenskir jafnaðarmenn standa undir norrænu nafni verða þeir að vakna og sjá sína sérstöku ábyrgð á að rjúfa vítahring. Vökumenn norrænnar jafnaðarstefnu á Íslandi eru 22. júlí kynslóðin sem Jens talar til.

Grein Kristrúnar Lexían frá Útey birtist í blaðinu í gær.




Skoðun

Skoðun

Stöðvum hel­víti á jörðu

Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Sjá meira


×