Hin hliðin frá Húsavík Pálmi Pálmason skrifar 14. september 2012 06:00 Mikið hefur verið fjallað um ráðningu sýslumannsins á Húsavík og þar hafa ýmsar yfirlýsingar og stór orð fallið. Umræðan hefur verið mjög einhliða. Vegna þessa tel ég rétt að fram komi að ég er ekki málkunnugur Ögmundi Jónassyni eða tengdur honum á nokkurn hátt. Hæfir umsækjendurEn þetta mál snýst fyrst og fremst um fólk sem sótti um starf sem það hafði áhuga fyrir og menntun til að sinna. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi sem skrifstofustjóri embættisins að vinna með Svavari Pálssyni í u.þ.b. átta ár, en ég hætti störfum í maí sl. Svavar kom til starfa sem fulltrúi sýslumanns árið 2004 og fljótlega var hann orðinn staðgengill sýslumanns. Árið 2009 var Svavar settur sem sýslumaður af Rögnu Árnadóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, þar til hann var skipaður um síðustu áramót. Hann hafði þá verið settur í embætti alls ellefu sinnum! Þessa óvissu lét hann yfir sig ganga allan þennan tíma og sinnti sínu starfi af mikilli fagmennsku og trúmennsku. Enginn hefur borið brigður á það að Svavar uppfylli algjörlega kröfur um menntun til starfsins. Enginn hefur bent á mistök eða slæleg vinnubrögð hans sem setts sýslumanns, heldur þvert á móti, framganga hans hefur þótt til mikillar fyrirmyndar. Með þessum orðum er ég ekki að kasta rýrð á kærandann í málinu, Höllu Bergþóru Björnsdóttur, því við hjá embættinu þekktum hana að góðu einu. Hæfnismat er heildstættNú hefur margsinnis komið fram í fjölmiðlum að kærandinn sé hæfari en sá er skipaður var. Hér skal leiðrétt að kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að umsækjendur væru a.m.k. jafnhæfir eða „stóðu nokkuð jafnt að vígi varðandi hlutlæga þætti efnismatsins”. Hin svokölluðu „huglægu” skilyrði um starfshæfni, mannleg samskipti, andlegt atgervi, samstarfshæfni, eiginleika og færni, sem sett eru sem skilyrði nr. 9-12 í auglýsingunni um starfið og öllu skipta þegar á vinnustað er komið, voru ekki metin af kærunefndinni. Aðeins sagt að ráðherra skyldi nú fara varlega í að meta það! Georg BjarnfreðarsonÍ mjög góðri grein í Fréttablaðinu þ. 4. september eftir Ástu Bjarnadóttur, vinnu- og skipulagssálfræðing, kemur fram hvernig kærunefnd jafnréttismála vinnur. Ásta bendir á ýmislegt í þeirri vinnu sem mætti kannski taka til frekari skoðunar. Skipaður sýslumaður uppfyllir menntunarkröfur, hann hefur einnig mjög yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á starfseminni sem fram fer í embættinu. Hvernig er hægt að komast að þeirri niðurstöðu að kærandinn sé hæfari en sá er ráðinn var sem er fullkomlega hæfur? Það hafa vissulega vaknað spurningar hversu vel kærunefnd jafnréttismála þekki til starfsemi sýslumannsembætta. Jafnréttismál?En sú spurning hlýtur að vakna, af hverju að henda út starfsmanni sem hefur sinnt starfinu í á þriðja ár og staðið sig með einstökum sóma bæði sem embættismaður og sem persóna? Af því hann er karl? Gildir reglan um jákvæða mismunun án tillits til aðstæðna? Ég stend í þeirri meiningu að tilgangur jafnréttislaganna hafi fyrst og fremst verið að stuðla að jafnri stöðu kynjanna á vinnumarkaði almennt en ekki vera haldreipi í baráttu hæfra einstaklinga um einstakar forstöðumannsstöður hjá ríkinu. Áhrif á reksturÍ viðtali við Morgunblaðið sunnudaginn 8. september segir Halla Bergþóra: „Í meðmælabréfi starfsmanna embættisins á Húsavík var t.d. gefið í skyn að væntanlega myndi koma til uppsagna kæmi einhver annar inn fyrir settan sýslumann sem ég er ekki sammála og hefði getað andmælt hefði ég fengið færi á.” Sem fjármálastjóri embættisins í 16 ár get ég fullvissað lesendur um það að annaðhvort var um að ræða að fá hækkun á fjárheimild til embættisins sem þó er almennt útilokað á niðurskurðartímum, minnka starfshlutfall starfsmanna eða segja upp starfsmanni ef ráðning hennar hefði gengið fram. Stuðningslisti starfsfólksJafnframt segir Halla Bergþóra: „Það er hreinlega ósanngjarnt að setja fólk í þá stöðu, að yfirmaður biðji það um að skrifa undir slíkt skjal fyrir annan yfirmann.” Það er nokkuð bratt finnst mér að Halla Bergþóra skuli setja svona yfirlýsingu frá sér, því starfsfólk var ekki „beðið” um að skrifa undir en þetta var vissulega rætt sameiginlega. Nauðsynlegt er að upplýsa að starfsmenn embættisins 18 að tölu, lögreglumenn og skrifstofufólk, skrifuðu ráðherra þetta bréf að eigin frumkvæði og án aðkomu eða nokkurrar vitneskju Svavars Pálssonar, þar sem þess var eindregið óskað að Svavar yrði skipaður sýslumaður. Af hverju skyldi það hafa verið? Jú, við vorum viss um það væri embættinu til góðs og af reynslu vissum við að það væri starfsfólkinu og vinnustaðnum til góðs. Það er ekki nokkur vafi á því að ráðherrann hefur horft til hagsmuna embættisins og starfsmanna þess við ákvörðun sína og beitt heilbrigðri skynsemi. Það er þakkar- og virðingarvert. Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál en þessar athugasemdir eru óhjákvæmilegar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun