Innlent

Hvetja landsmenn til að huga að garðhúsgögnum og lausamunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það gæti orðið vesen að vera með tjöld um helgina.
Það gæti orðið vesen að vera með tjöld um helgina.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur landsmenn til að huga að lausamunum, eins og garðhúsgögnum og trampólínum fyrir helgina, en eins og greint var frá í morgun er gert ráð fyrir hvassviðri um helgina á sunnanverðu og vestanverðu landinu. Þá minnir Landsbjörg ferðamenn á að kynna sér vel veðurspár áður en lagt er af stað. Varhugavert geti verið að vera á ferð með eftirvagna svo sem fellihýsi í eftirdragi í verstu kviðunum.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að síðdegis á morgun sé búist við hvassri suðaustan- og austanátt sunnan og vestantil á landinu með rigningu og að meðalvindhraði verði á bilinu 13 til 20 metrar á sekúndu. Hviður geti hinsvegar farið upp í 30 metra á sekúndu sumstaðar, en það jafngildir stormi eða roki.


Tengdar fréttir

Tjöld og tjaldvagnar gætu fokið

Veðurstofan varar fólk við að tjöld, hjólhýsi og aftanívagnar geti fokið út í veður og vind suðvestanlands og á vestanverðu hálendinu annað kvöld, í slagveðurs rigningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×