Fagna Framararnir enn á ný eftir lokaumferðina? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2012 10:00 Fögnuðu í fyrra Framarar héldu sér uppi í lokaumferðinni í fyrra og héldu upp á Pepsi-deildar sætið með því að borða saman köku í klefanum. Fréttablaðið/daníel
Fram og Selfoss berjast fyrir lífi sínu í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í dag en það er þó óhætt að segja að liðin séu í ólíkri aðstöðu. Það er ekki nóg með að Framarar standi miklu betur að vígi í stigatöflunni heldur eru þeir ókrýndir Íslandsmeistarar í fallbaráttu enda búnir að fagna oftar í lokaumferðinni en flest önnur félög undanfarin ár. Framarar björguðu sér í lokaumferðinni í fyrra og það var í áttunda sinn frá árinu 1999 sem Safamýrarliðið bjargaði sér frá falli í síðasta leik. Selfyssingar hafa aðeins einu sinni verið í efstu deild áður og þeir voru fallnir fyrir lokaumferðina sumarið 2010 . Selfyssingar þurfa á sannkölluðu kraftaverki að halda í dag ætli þeir að spila áfram í Pepsi-deildinni næsta sumar. Þeir verða að vinna sinn leik, á heimavelli á móti ÍA, á sama tíma og Framarar þurfa að tapa á móti ÍBV á Laugardalsvellinum. Það er ekki einu sinni nóg því Selfossliðið þarf einnig að vinna upp sex marka forskot Framara í markatölu. Staða Framara er því góð og svo gæti farið að þeir geti fagnað eftir tapleik alveg eins og þeir gerðu eftir lokaumferðina árið 2004. Þá töpuðu þeir stórt á móti Keflavík en úrslit annarra leikja sáu til þess að þeir voru áfram í efstu deild. Innbyrðisviðureignir gilda ekki í fótboltanum eins og í vetrarboltagreinunum sem er gott fyrir Framara enda unnu Selfyssingar báða innbyrðisleiki liðanna í sumar, fyrst 2-0 á Laugardalsvellinum í maí og svo 4-2 á Selfossi í ágúst. Framarar eru því í lykilstöðu til að bæta við magnaða tölfræði sína en frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984 hefur Framliðið bjargað sér í níu af þeim tíu skiptum sem liðið hefur verið í fallhættu í lokaumferðinni. Þeir státa af níutíu prósent árangri í fallbaráttuslag á lokadegi mótsins og það bendir allt til þess að sú tala hækki enn eftir leikina í dag. Allir sex leikir lokaumferðarinnar hefjast klukkan 14.00 í dag.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira