Ábyrg fyrirtæki njóta ávinnings 10. nóvember 2012 07:00 Ragna Sara Jónsdóttir
Landsvirkjun hefur ráðið Rögnu Söru Jónsdóttur í starf forstöðumanns samfélagsábyrgðar. Um er að ræða nýja stöðu hjá fyrirtækinu en Landsvirkjun er í hópi fyrstu fyrirtækjanna hér á landi til að búa til stefnu um samfélagslega ábyrgð. „Þetta leggst rosalega vel í mig. Íslensk fyrirtæki hafa verið nokkurn tíma að taka við sér þegar kemur að samfélagsábyrgð og það er flott hjá Landsvirkjun að taka af skarið í þessum málaflokki,“ segir Ragna Sara. Stefna Landsvirkjunar um samfélagslega ábyrgð var samþykkt innan fyrirtækisins í nóvember 2011. Í grunninn felst stefna fyrirtækisins í því að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins. Ragna Sara segir erlendar rannsóknir sýna að fyrirtæki geti vænst margs konar ávinnings sýni þau samfélagslega ábyrgð í störfum sínum. „Nefna má aukna sátt um fyrirtækið og aðgerðir þess, lægri kostnað og aukna ánægju starfsmanna,“ segir Ragna Sara. Landsvirkjun tók á síðasta ári þátt í því að stofna Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð. Eitt markmiða Festu er að stuðla að vitundarvakningu um samfélagsábyrgð fyrirtækja en auk Landsvirkjunar voru Alcan á Íslandi, Síminn, Landsbankinn, Íslandsbanki og Össur stofnfélagar.- mþl
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira