Innlent

Ólafsfjarðarmúli lokaður vegna snjóflóðahættu

Eyrarhlíð á síðasta vetur. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Eyrarhlíð á síðasta vetur. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Ólafsfjarðarmúli er lokaður vegna snjóflóðahættu samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.

Reikna má með hríðarveðri og slæmu skyggni meira og minna í allan dag austantil á Norðurlandi og Austurlandi suður um á miðja Austfirði. Vindhviður allt að 40 m/s suðaustanlands frá því um miðjan morgunn og fram undir kvöld, einkum á leiðinni frá Suðursveit austur í Berufjörð. Á Vestfjörðum, Ströndum og vestantil á Norðurlandi lægir heldur í dag og dregur úr snjókomu, en áfram verður skafrenningur.

Færð og aðstæður:

Óveður er á Kjalanesi. Vegir eru að mestu auðir um sunnanvert landið. Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir og víða skafrenningur á fjallvegum.

Á Vestfjörðum er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á Barðaströnd og hálka á Kleifaheiði og Hálfdán. Það er hálka og skafrenningur á Gemlufallsheiði, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og einnig hálka í Ísafjarðardjúpi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Ströndum er víða þæfingsfærð eða þungfært.

Á Norðurlandi vestra er ófært frá Hofsósi til Siglufjarðar. Á öðrum leiðum er snjóþekja, hálka eða hálkublettir og skafreningur. Þungfært er á útvegum í þessum landshluta.

Á Norðurlandi eystra er víða snjókoma og stórhríð og víða beðið með mokstur vegna veðurs. Ófært er milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Á milli Akureyrar og Dalvíkur er þæfingsfærð og stórhríð. Ófært í Víkurskarði, Fljótsheiði, Hólasandi, Hófaskarði og Mývatnsöræfum. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Þæfingsfærð og stórhríð er á Mývatnsheiði, Köldukinn og Tjörnesi en þungfært er Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði.

Á Austurlandi er víða éljagangur og snjóþekja eða hálka á vegum. Óveður er á Jökuldal. Hálka og skafrenningur er á Fagradal, Fjarðarheiði og Oddskarði. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Breiðdalsheiði og Öxi. Óveður er í Hamarsfirði og sandfok í Hvalnesskriðum. Vegur er að heita má auður með ströndinni frá Reyðarfirði og suður úr.

Lítið hefur verið að gera hjá björgunarsveitum landsins í dag, Súlur á Akureyri aðstoðuðu Rarik við línuvinnu en annars var rólegt hjá sveitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×