Innlent

Bjarni með tæplega 57 % - Ragnar ekki í sjö efstu

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.
Þegar talin hafa verið 3998 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi er röð efstu frambjóðenda þessi:

Bjarni Benediktsson - 2266 atkvæði í 1. sæti

Ragnheiður Ríkharðsdóttir - 1772 atkvæði í 1. – 2. sæti

Jón Gunnarsson - 1875 atkvæði í 1. – 3. sæti

Vilhjálmur Bjarnason - 1931 atkvæði í 1. – 4. sæti

Elín Hirst - 2078 atkvæði í 1. – 5. sæti

Óli Björn Kárason - 2150 atkvæði í 1. – 6. sæti

Karen Elísabet Halldórsdóttir - 1667 atkvæði í 1. – 7. sæti

Aðrir frambjóðendur hafa hlotið færri atkvæði.

Röð frambjóðenda er því óbreytt. Bjarni Benediktsson er með 56,6 prósent atkvæða og lækkar lítillega frá síðustu tölum. Ragnar Önundarson bauð sig fram gegn Bjarna en hann kemst ekki í sjö efstu sætin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×