Hrófla ekki við Obama 24. febrúar 2012 00:00 Rick Santorum og Mitt Romney Kvarnast hefur úr fylgi Romneys meðal repúblikana undanfarið. nordicphotos/AFP
Mitt Romney er engan veginn öruggur lengur með sigur í forkosningum Repúblikanaflokksins. Samkvæmt nýjum skoðanakönnunum er Rick Santorum kominn með nokkurn veginn jafnt fylgi meðal flokksmanna. Báðir mælast með um þriðjungs fylgi en Newt Gingrich og Ron Paul með 15 prósent hvor. Barack Obama hefur þó enn býsna örugga stöðu gagnvart öllum hugsanlegum mótframbjóðendum sínum. Hann mælist með meira en 50 prósenta fylgi, sama hver repúblikananna fjögurra færi í framboð á móti honum. Santorum hefur ótvíræða yfirburði meðal íhaldssamasta hluta Repúblikanaflokksins, ekki síst vegna andstöðu hans gegn fóstureyðingum og áherslu á gamaldags fjölskyldugildi. Fram undan eru tveir mikilvægir kosningadagar í forkosningabaráttu Repúblikanaflokksins, sem væntanlega ráða úrslitum um það hvort sigurganga Romneys, sem til þessa hefur virst illsigrandi, heldur áfram. Þriðjudaginn 28. febrúar verða forkosningar í Michigan og Arizona en viku síðar, 6. mars, verður kosið í tíu ríkjum.- gb
Fréttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira