Íslenski boltinn

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 1-2 | KR bikarmeistari

Guðmundur Marinó Ingvarsson á Laugardalsvelli skrifar
mynd/daníel
Mývetningurinn Baldur Sigurðsson tryggði KR bikarmeistaratitilinn í dag með laglegu skallamarki eftir aukaspyrnu Bjarna Guðjónssonar. KR er því bikarmeistari annað árið í röð og í 13. sinn alls.

Leikurinn var hin besta skemmtun og hefðu bæði lið hæglega getað skorað meira í leiknum.

Stjarnan hóf leikinn betur og skoraði úr fyrsta færi leiksins og gerði allt hvað liðið gat til að bæta mörkum. Mark Garðars Jóhannssonar var eitt það glæsilegasta í sögu úrslitaleikja bikarkeppninnar, viðstöðulaust efst í fjær hornið eftir sendingu Mark Donninger inn í teiginn.

Stjarnan var meira með boltann og sótti hratt en herslumuninn vantaði á að liðið næði að skapa sér þau dauðafæri sem liðið þurfti til að bæta við marki.

KR jafnaði gegn gangi leiksins eftir skelfileg mistök Arnars Darra Péturssonar í markinu. Gary Martin gerði vel í stanga boltann yfir Arnar Darra sem hafði þó alla möguleika á að ná fyrst til boltans ef hann hefði verið með hendurnar uppi í stað þess að ætla að grípa boltann í klofhæð.

Stjarnan fékk dauðafæri til að komast aftur yfir fyrir hálfleik en Garðar Jóhannsson skaut í slána úr vítaspyrnu á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks.

Seinni hálfleikur var ekki eins hraður og skemmtilegur og sá fyrri en engu að síður fínasta skemmtun. Kjartan Henry fékk besta færi hálfleiksins þegar hann skaut í slána einn fyrir opnu marki þegar hálftími var eftir.

Stjarnan var meira með boltann og sótti meira og fékk færi til að komast yfir á ný en það var KR sem skoraði aftur þegar sex mínútur voru eftir af leiknum. Baldur Sigurðsson þar að verki en það er þriðja mark hans í þremur bikarúrslitaleikjum þar sem hann hefur verið í sigurliði.

Baldur skoraði seinna markið í 2-0 sigri KR í fyrra á Þór og eins skoraði hann seinna markið í 2-0 sigri Keflavíkur á KR í úrslitaleiknum 2006.

KR var mun sterkari aðilinn eftir að hafa skorað og fékk færi til að gera út um leikinn. Það var ekki fyrr en í uppbótartíma að Stjarnan náði einhverri pressu á mark KR en án þess þó að skapa sér það dauðafæri sem þurfti til að knýja fram framlengingu.

Það var því KR sem fagnaði bikarmeistaratitlinum annað árið í röð þrátt fyrir að andstæðingurinn hafi bæði átt fleiri færi og verið meira með boltann.



Bjarni Jóh: Miklu betra liðið tapaði
Lið Stjörnunnar í dag.mynd/daníel
„Við spiluðum nægjanlega vel til að vinna þennan leik. Við mættum rosalega vel stemmdir í hann og mér fannst við betri aðilinn í leiknum eiginlega allan tímann. Við héldum boltanum vel og vorum mjög sprækir. Við eigum miklu fleiri markskot og færi en þetta eru refir í þessu. Það vantaði örlitla yfirvegun til að klára færin okkar en það var mikið betra liðið sem tapaði þessum leik," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn.

„Við erum ekkert í þeim pakka að vera stoltir af frammistöðunni og tapa. Við ætluðum að ná í dolluna og það var ekkert annað uppi á borði. Auðvitað erum við stoltir að hafa tekið þátt í úrslitaleiknum en það er ekkert hrikalegt stolt yfir því að hafa tapað honum," sagði Bjarni.

Það vakti athygli að Ingvar Jónsson sat á varamannabekknum á Laugardalsvellinum annan leikinn í röð þar, fyrst með landsliðinu í vikunni og nú í dag. Bjarni sagð það ekki vera ákvæði í samningi Arnars Darra að hann ætti að spila bikarleikina en Arnar Darri gerði stór mistök í fyrra marki KR.

„Þetta varð bara svona. Hann fékk fyrsta bikarleikinn og annan og þá ákváðum við að við skildum klára þetta með honum og það var bara ákvörðun sem var tekin. Mér fannst hann standa sig ágætlega fyrir utan fyrsta markið," sagði Bjarni.

Rúnar: Betri tilfinning en í fyrra
Rúnar fagnar með strákunum sínum.mynd/daníel
„Tilfinningin er stórkostleg, hún er eiginlega enn betri en í fyrra. Ég er mjög ánægður með liðið, framlag allra leikmanna. Það var vitað fyrirfram að þetta yrði erfiður leikur. Stjarnan er með stóra og sterka stráka sem eru gríðarlega duglegir að koma boltanum inn í teig og berjast um fyrsta, annan og þriðja boltann," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR í leikslok.

„Við höfðum ekki áhyggjur þó þeir hafi skorað úr fyrsta færinu í leiknum. Eðlilega hefðum við átt að vera búnir að hlaupa út úr teignum og gera hann rangstæðan en þetta var frábært mark hjá Garðari. Við héldum bara áfram, gerðum engar breytingar. Við héldum bara áfram að gera það sem við ætluðum að gera og við komumst smátt og smátt inn í leikinn og jöfnuðum með smá heppnismarki. Ég vil meina að þeirra mark hafi ekki verið síðra heppnismark. Það var sparkað eitthvert inn í teig og það var klárað vel eins og Gary kláraði sitt færi vel. Svo var jafnræði með liðunum en við drógum síðasta hálmstráið í restina og skoruðum frábært mark.

„Þeir brenna af vítaspyrnu á mikilvægu augnabliki rétt fyrir hálfleik og við fórum glaðir inn í hálfleik með stöðuna 1-1. Ég var ánægður með framleg leikmanna og þurfti bara að laga fáein atriði sem við vorum búnir að leggja upp. Við þurftum bara að gera það aðeins betur. Við gerðum það í seinni hálfleik og unnum góðan sigur.

„Það er stórkostlegt að vera með hóp góðra leikmanna. Baldur hefur ekki skorað mikið fyrir okkur í sumar og verið í lægð en hann notaði rétta tækifærið til að rísa upp á afturfæturna og tryggja okkur þennan titil. Hann er alltaf líklegur þegar hann spilar," sagði Rúnar sem hefur skipulagt æfingu klukkan 11 í fyrramálið þó liðið fái að fagna aðeins í kvöld.

„Við erum í þessu til að vinna fótboltaleiki og til að vinna mót. Við ætlum að gera eins vel í þessu og við getum og þá þurfa menn að færa fórnir og ef menn eru ekki tilbúnir til þess þá vinna menn ekki neitt," sagði Rúnar en KR á mjög mikilvægan leik í deildinni gegn FH á fimmtudaginn.

Garðar: Biðst afsökunar
Garðar skallar að marki.mynd/daníel
„Ég biðst afsökunnar á að hafa klúðrað vítinu og eyðilagt fyrir strákunum. Það hefði að minnsta kosti verið framlenging ef ég hefði nýtt það," sagði niðurbrotinn Garðar Jóhannsson framherji Stjörnunnar í leikslok.

„Við gerum okkur seka um tvö mistök í fyrri hálfleik. Ég klúðraði víti og við fengum á okkur skítamark. Staðan jöfn í hálfleik í staðin fyrir að hafa getað verið 2-0. Þetta er bara svona og við þurfum að læra af þessu. Það kemur vonandi leikur eftir þennan leik og við tökum bara bikarinn á næsta ári.

„Mér fannst þetta ekkert erfiðara en hver annar leikur. Þetta var kannski eins og hjá Þór í fyrra. Þetta er mjög súrt," sagði Garðar að lokum.

Bjarni Guðjóns: Verðskuldaður sigur
Bjarni í hasar í dag.
„Þetta verður skemmtilegra og skemmtilegra og ég fékk að taka þátt í ár þó það hafi verið tæpt. Ég meiddist á æfingu á fimmtudagskvöldið. Ég fékk krampatognum eins og það heitir. Ég var í sjúkraþjálfun í allan gærdag og í morgun hjá mjög hæfum mönnum sem komu mér í gegnum þetta og gerðu það að verkum að ég gat spilað. Fyrir leikinn ætlaði ég ekki að þora að skokka af stað ef ég fyndi of mikið til þannig að ég gæti ekki tekið þátt í leiknum. Sem betur fer hafðist það," sagði Bjarni Guðjónsson fyrirliði KR.

„Við byrjuðum ekki eins og við vildum. Þeir eru með hörku gott lið og með fullt af góðum leikmönnum, eins og við líka, en þetta var kafla skipt heilt yfir. Þeir fengu víti sem Garðar klúðrar. Við fengum fín færi til að skora þetta annað mark sem svo varð raunin og kláraði þennan leik fyrir okkur. Heilt yfir held ég að við eigum þetta skilið. Að vinna bikarúrslitaleik 2-1 er bara hefðbundið," sagði Bjarni sem lagði upp sigurmarkið.

„Þetta var æft hinum megin. Ég gat ekki æft í gær en þegar ég sá rauða kollinn á Baldri skjótast á milli línanna dauðafrír þá reyndi ég að setja boltann á hausinn á honum.

„Við erum komnir með bikar en okkur langar í meira. Það er úrslitaleikur gegn FH á fimmtudaginn. Við förum vonandi strax á morgun í að undirbúa okkur undir það svo við komum mjög sterkir inn í þann leik og setja aftur keppni í Íslandsmeistarabaráttuna," sagði Bjarni að lokum.

Hannes: Féll með okkur
Hannes átti frábæran leik.mynd/daníel
„Þetta var mjög erfiður leikur. Stjörnumenn voru sprækir og við vorum ekki nógu sprækir en þetta féll með okkur í dag. Við gætum ekki verið ánægðari með það," sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður KR sem átti góðan leik á milli stanganna og verði meðal annars dauðafæri í seinni hálfleik í stöðunni 1-1 auk þess að loka markinu í vítaspyrnu Stjörnunnar.

„Heppnin hefur verið með mér upp á síðkastið en það var mjög mikilvægt fyrir okkur að fá ekki mark á okkur á þessum tímapunkti. Það hefði verið hrikalegt.

„Við vorum með mómentið með okkur í hálfleik. Við gátum prísað okkur sæla að vera ekki undir. Þeir höfðu verið aðgangsharðir í hálfleiknum og það var saga leiksins. Við sluppum með skrekkinn og settum svo á þá og verðskuldum þetta.

„Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá var aldrei neinn sérstakur taugatitringur. Þetta var eins og hver annar leikur þannig séð á meðan hann spilaðist. Það getur vel verið að það hafi landað þessu á endanum. Svo brýst þetta út þegar þetta er í höfn, maður vill ekki stressast upp og fagna neinu of snemma en þegar þetta er í höfn þá springur allt út," sagði Hannes að lokum.

Baldur: Heiður að skora í þessum leikjum
Hetja KR í dag.mynd/daníel
„Tilfinningin er æðisleg. Þriðji bikarinn sem ég vinn og þetta verður bara betra," sagði Baldur Sigurðsson sem tryggði KR sigurinn með marki sínu sex mínútum fyrir leikslok.

„Þetta er þriðji leikurinn þar sem ég fæ þann heiður að skora í þessum leik á þessum velli í sigurleik, það er virkilega gaman.

„Ég er mikið inni í teig í þeim leikjum sem ég tek þátt í. Þetta hefur gerst svona og ekki leiðinlegt að sigrarnir koma þegar maður skorar," sagði Baldur en nánar verður rætt við hann í mánudagsblaði Fréttablaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×