Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í riðlakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Mynd/Valli
Guðjón Valur Sigurðsson, vinstri hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, varð markahæsti leikmaður riðlakeppni Ólympíuleikanna sem lauk í gær. Guðjón Valur skoraði 36 mörk í leikjunum 5 eða 7,2 mörk að meðaltali í leik.

Guðjón Valur skoraði tveimur mörkum meira en Svíinn Niclas Ekberg sem kom næstur með 34 mörk en Króatinn Ivan Cupic var síðan í þriðja sætinu með 33 mörk. Aron Pálmarsson er síðan í fjórða sætinu ásamt Dananum Anders Eggert.

Guðjón Valur og Aron hafa ólíkt hinum skorað öll mörkin sín utan af velli og eru því þeir tveir leikmenn Ólympíuleikanna sem hafa skorað flest mörk utan af velli.

Alexander Petersson og Ólafur Stefánsson komast líka á topp tuttugu listann og Ísland á því fjóra menn meðal þeirra markahæstu á Ólympíuleikunum.

Markahæstu menn í riðlakeppni ÓL 2012:

1. Guðjón Valur Sigurðsson, Íslandi 36 mörk

2. Niclas Ekberg, Svíþjóð 34/13

3. Ivan Cupic, Krótaíu 33/13

4. Aron Pálmarsson, Íslandi 30

4. Anders Eggert, Danmörku 30/16

6. Gabor Csaszar, Ungverjalandi 27/10

7. Steven Larsson, Bretlandi 26/5

8. Jerome Fernandez, Frakklandi 24/3

8. Mikkel Hansen, Danmörku 24

8. Samuel Honrubia, Frakklandi 24

8. Jae Woo Lee, Suður-Kórea 24/12

12. Daniel Narcisse, Frakklandi 23*

13. Alexander Petersson, Íslandi 22

13. Domagoj Duvnjak, Króatíu 22

13. Marko Vujin, Serbíu 22/4

16. Ólafur Stefánsson, Íslandi 21/11

16. Hyowon Eom, Suður-Kóreu 21/3

16. Nikola Karabatic, Frakklandi 21

16. Jorge Maqueda Peno, Spáni 21

16. Diego Esteban Simonet, Argentínu 21




Fleiri fréttir

Sjá meira


×