Umboðsmaður Alþingis tekur á landlækni Sölvi Jónsson skrifar 31. desember 2012 06:00 Á heimasíðu umboðsmanns Alþingis, dagsett 17. október, er að finna útdrátt úr bréfi sem hann ritaði velferðarráðuneytinu síðasta sumar vegna vinnubragða landlæknisembættisins í kvörtunarmálum. Þar segir: ?Í ágúst síðastliðnum tilkynnti umboðsmaður Alþingis velferðarráðherra að hann hefði það til skoðunar að taka stjórnsýslu þessara mála til athugunar að eigin frumkvæði. Ástæða þess að umboðsmaður hafði til skoðunar að hefja frumkvæðisathugun á stjórnsýslu landlæknisembættisins voru ýmsar kvartanir og ábendingar sem hafa borist undanfarin misseri vegna eftirlits embættisins og í vissum tilvikum vegna eftirlits velferðarráðuneytisins með landlækni. Efnislega hafa þessar kvartanir m.a. lotið að aðgangi einstaklinga að gögnum, t.d. eigin sjúkraskrá, sjúkraskrá látins maka eða að vinnugögnum heilbrigðisstarfsmanna sem verða til við rannsókn eða meðferð en eru ekki færð í sjúkraskrá, viðbrögðum og niðurstöðum landlæknis í tilefni af kvörtunum yfir vanrækslu eða mistökum við veitingu heilbrigðisþjónustu eða vegna ótilhlýðilegrar framkomu heilbrigðisstarfsmanna, hæfi þeirra sem koma að úrlausn kærumála á vegum landlæknisembættisins og eftirliti með því að heilbrigðisstofnanir eða heilbrigðisstarfsmenn fari að ákvæðum laga s.s. um tilkynningarskyldu vegna óvæntra atvika, trúnaðar- og þagnarskyldu og aðgang og notkun heilbrigðisstarfsmanna á upplýsingum í sjúkraskrám.?Hvítþvottarskýrsla Þetta eru sannarlega góðar fréttir. Ég þekki til vinnubragða landlæknis úr tveimur málum sem ég hef sent inn og nú er annað þeirra hjá velferðarráðuneytinu eftir að hafa verið í millitíðinni hjá umboðsmanni Alþingis. Landlæknir kallar til svokallaðan óháðan álitsgjafa. Læknir rannsakar lækni, sjúkraþjálfari rannsakar sjúkraþjálfara. Álitsgjafinn vinnur nánast án undantekningar hvítþvottarskýrslu fyrir starfsbróður sinn og landlækni og sviptir með því sjúklinginn rétti til bóta. Sjúklingnum er gefinn frestur til að svara en það sem hann hefur um málið að segja er síðan ekki tekið til nokkurrar skoðunar. Álit landlæknis skal standa. Enginn lærir því neitt af þessu. Lækninum er ekki sagt að taka sig á í starfi eða endurmennta sig eða neitt slíkt og getur þess vegna haldið áfram að gera sömu vitleysuna í starfi og skaða áfram sjúklinga sína. Landlæknir virðist löngu hafa gleymt markmiði sínu ?að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að heilbrigði landsmanna? (1. gr. í lögum um landlækni). Og sjúklingurinn situr eftir með sárt ennið. Jafnvel tekst landlækni að hafa af honum geðheilsuna líka.Starfsmenn á námskeið Hann getur að vísu kært úrskurð landlæknis til ráðherra. En aðeins málsmeðferðina, ekki efnislega niðurstöðu málsins samkvæmt lögfræðingum landlæknis. Í 12. greininni í lögum um landlækni segir: ?Heimilt er að kæra málsmeðferð landlæknis samkvæmt ákvæði þessu til ráðherra.? Ekkert sérákvæði er að finna um efnislega niðurstöðu kvartanamála, ekkert er raunar minnst á efnislega niðurstöðu kvartanamála í lögum um landlækni. Lögfræðinga landlæknis skortir því lagarök fyrir þessari túlkun sinni. Það segir sig sjálft að ef eitthvað er athugavert við málsmeðferðina þá er mjög sennilega eitthvað athugavert við niðurstöðuna líka. En nú hefur landlækni sem sagt borist ?viðvörun? umboðsmanns Alþingis í gegnum velferðarráðuneytið og landlæknir lofar vitaskuld öllu fögru. Landlæknir ætlar að senda þá starfsmenn sem helst koma að eftirliti og kvörtunarmálum á námskeið í stjórnsýslulögum og segir að vinna við gerð verkferla er varða eftirlit og afgreiðslu kvartana hafi hafist fyrr á árinu. Ég hef ekki nokkra trú á að breyting verði á vinnubrögðum landlæknis í meðferð kvörtunarmála þrátt fyrir þetta og vona að þetta kerfi kvörtunarmála verði að lokum tekið til gagngerrar endurskoðunar af umboðsmanni Alþingis og úr höndum landlæknis. Sá sem sendir inn kvörtun til landlæknis mun örugglega áfram aðeins uppskera vonbrigði, sárindi og leiðindi og enga viðurkenningu á þeim miska sem hann hefur hlotið. Ég ráðlegg því ekki nokkrum manni að fara þá leið. Sitji maður uppi með skaða vegna mistaka heilbrigðisstarfmanns er eina vitið að láta landlækni ekki hafa minnstu aðkomu að málinu vegna þess að álit hans veikir nánast án undantekningar málið eða eyðileggur það alveg. Hægt er að senda inn umsókn í sjúklingatryggingu Sjúkratrygginga Íslands (eða hjá vátryggingarfélagi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanns) og síðan leita með málið beint til dómstóla ef svarið við umsókninni verður neikvætt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar