Ég bið um nýjan Álftanesveg Berglind Birgisdóttir skrifar 14. desember 2012 06:00 Hvers eigum við íbúar á Álftanesi að gjalda í þeirri umræðu sem er um nýjan Álftanesveg? Ég er ung móðir tveggja barna sem þarf að fara um veginn daglega og oft með börnin með mér í bílnum. Ég hef búið á Álftanesinu frá barnsaldri og valdi að búa hér áfram eftir að ég stofnaði fjölskyldu. Ég lenti sjálf í slysi á Álftanesveginum fyrir mörgum árum og var heppin að ekki fór verr í það sinn á þessum hættulega vegi. Í meira en 10 ár hefur mér og öðrum íbúum á nesinu alltaf verið sagt að nýr vegur væri alveg að koma, en lítið gerst. Ég hef fylgst með því úr fjarlægð hvernig tillögur hafa verið gerðar um nýjan veg og þær kynntar og metnar á alla vegu. Allir virðast hafa fengið gott tækifæri á þessum langa tíma til að segja sitt álit á framkvæmdinni og veginum. Ég veit ekki betur en að þessi vegur hafi fengið alla þá lýðræðislegu kynningu og löglegu samþykkt sem hægt er að hugsa sér. Ég spyr því, hvernig stendur á því að hópur fólks sem mér sýnist vera meira og minna íbúar annars staðar en af Álftanesi geti leyft sér það að reyna að stöðva þessa nauðsynlegu framkvæmd núna loksins þegar hún er að hefjast? Hvar er manngæskan í þeirra huga sem telja sig þess umkomna að setja öryggi vegfarenda aftur fyrir hagsmuni hrauns og slóða? Ég bið ykkur vinsamlega að taka mannslífin fram yfir þrætur um vegstæði. Ákvörðun um vegstæði hefur verið tekin í samræmi við lög og reglur og þar hafa allir í langan tíma getað haft áhrif með því að koma skoðunum sínum á framfæri á lýðræðislegan hátt. Stoppið ekki þessa nauðsynlegu vegaframkvæmd. Ég bið um það fyrir okkur öll sem förum um þennan veg og ég bið um öryggi fyrir börnin okkar. Ég skora á fleiri að láta í sér heyra sem eru sama sinnis og ég. Við getum ekki setið þegjandi hjá. Ég bið um nýjan Álftanesveg strax. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Hvers eigum við íbúar á Álftanesi að gjalda í þeirri umræðu sem er um nýjan Álftanesveg? Ég er ung móðir tveggja barna sem þarf að fara um veginn daglega og oft með börnin með mér í bílnum. Ég hef búið á Álftanesinu frá barnsaldri og valdi að búa hér áfram eftir að ég stofnaði fjölskyldu. Ég lenti sjálf í slysi á Álftanesveginum fyrir mörgum árum og var heppin að ekki fór verr í það sinn á þessum hættulega vegi. Í meira en 10 ár hefur mér og öðrum íbúum á nesinu alltaf verið sagt að nýr vegur væri alveg að koma, en lítið gerst. Ég hef fylgst með því úr fjarlægð hvernig tillögur hafa verið gerðar um nýjan veg og þær kynntar og metnar á alla vegu. Allir virðast hafa fengið gott tækifæri á þessum langa tíma til að segja sitt álit á framkvæmdinni og veginum. Ég veit ekki betur en að þessi vegur hafi fengið alla þá lýðræðislegu kynningu og löglegu samþykkt sem hægt er að hugsa sér. Ég spyr því, hvernig stendur á því að hópur fólks sem mér sýnist vera meira og minna íbúar annars staðar en af Álftanesi geti leyft sér það að reyna að stöðva þessa nauðsynlegu framkvæmd núna loksins þegar hún er að hefjast? Hvar er manngæskan í þeirra huga sem telja sig þess umkomna að setja öryggi vegfarenda aftur fyrir hagsmuni hrauns og slóða? Ég bið ykkur vinsamlega að taka mannslífin fram yfir þrætur um vegstæði. Ákvörðun um vegstæði hefur verið tekin í samræmi við lög og reglur og þar hafa allir í langan tíma getað haft áhrif með því að koma skoðunum sínum á framfæri á lýðræðislegan hátt. Stoppið ekki þessa nauðsynlegu vegaframkvæmd. Ég bið um það fyrir okkur öll sem förum um þennan veg og ég bið um öryggi fyrir börnin okkar. Ég skora á fleiri að láta í sér heyra sem eru sama sinnis og ég. Við getum ekki setið þegjandi hjá. Ég bið um nýjan Álftanesveg strax.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar